Ósvikinn breskur húmoristi Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 14. maí 2014 12:30 Listakonan Zoë tvinnar saman eigin tónsmíðar og vel þekkta slagara. Mynd/Úr einkasafni „
Zoë Martlew, tónskáld og sellóleikari, er ósvikinn breskur húmoristi sem notar kaldhæðni í list sinni og varpar fram spurningum um kynjafræðileg álitamál,“ segir Þórunn Gréta Sigurðardóttir tónskáld. Þórunn er ein þeirra sem sjá um tónleikaröðina Jaðarber í Listasafni Reykjavíkur, sem stendur að komu Martlew hingað til lands, meðal annars til að flytja kabarettinn Revue Z klukkan 20 í kvöld. Zoë Martlew hefur flutt Revue Z við góðan orðstír um allt Bretland og á tónlistarhátíðum víða um heim. Þar tvinnar hún saman eigin tónsmíðar og vel þekkta slagara sem hún velur út frá hverjum tónleikastað fyrir sig. Dagana 16. til 18. maí mun Martlew, ásamt Þórunni Grétu og Kristínu Þóru Haraldsdóttur víóluleikara, halda opna vinnustofu um listgjörninga á mörkum leiklistar og tónlistar. Nánari upplýsingar um vinnustofuna eru á jadarber.is.
Menning Mest lesið Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ Lífið Sækir um sem kærasti með nýju húðflúri Bíó og sjónvarp Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Lífið Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Lífið „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Tíska og hönnun „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Lífið Frá jólamörkuðum Evrópu til ævintýra í Asíu og Afríku Lífið samstarf Hefja framleiðslu á framhaldsmynd um Michael Jackson Bíó og sjónvarp Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Lífið Fleiri fréttir Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira