Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 7. október 2026 07:00 Unnur Borg er tvítug. vísir/einar „Maður sér fullorðið fólk í dag og það er fáránlega leiðinlegt. Eins og gamlar konur sem hafa aldrei unnið úr vandamálunum sínum. Þær hata allar ungar konur og hata lífið sitt ógeðslega mikið og það er allt öllum öðrum að kenna. Ég horfi á svona fullorðið fólk og hugsa bara: Guð, ég ætla aldrei að vera svona. Ég ætla bara að laga mín vandamál. Maður getur ekki látið æskuna taka yfir allt lífið, skilurðu?“
Hin tvítuga Unnur Borg er viðmælandi í fyrsta þættinum af Ung og upprennandi þar sem við kynnumst unga fólkinu okkar sem er að ryðja sér til rúms um þessar mundir. Innslagið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Við hittum hina einu sönnu Unni Borg í því skyni að ræða við hana á einlægu nótunum. Unnur hefur skotist upp á stjörnuhimininn hér á landi síðustu misseri. Hún vakti fyrst athygli fyrir myndskeið á samfélagsmiðlum en síðan þá hefur hún gefið út tónlist og sitt eigið tímarit. Það má segja að líf Unnar hafi tekið stakkaskiptum en hún vann fyrir ári hjá Steypustöðinni en gerir nú bara það sem hún vill að eigin sögn. „Það er allt búið að breytast, bókstaflega allt. Ég er búin að flytja, ég er hætt í vinnunni og komin í aðra vinnu. Rútínan mín líka, núna er ég bara að vinna á kvöldin. Ég er ekkert að vinna klukkan sjö, nei, átta á morgnana.“ Hún segir valdeflandi að þurfa ekki að vakna við vekjaraklukku og byrjar hvern dag á því að ryksuga. Hún segist finna fyrir frægðinni á hverjum degi. „Mér finnst það bara geðveikt. Aðdáendur mínir eru geggjað sætir. Það er enginn ljótur sem er aðdáandi minn. Ég er mjög stolt af því. Fallegt fólk elskar fallegt fólk.“ Unnur hóf að gefa út tímaritið UB Exclusive í apríl. Hún lýsir því sem listrænu og erótísku tímariti. Fyrsta útgáfan kom út undir nafninu Ég og dýrin sem ég ímynda mér. Reksturinn gangi vel. „Ég er svo stolt af mér að hafa gert þetta. Ég er meistari. Þetta er náttúrulega nektartímarit en þetta er list, fyrst og fremst. Þetta er meira tís heldur en pussy out. Þetta er ekki þannig. Mér finnst bara kvenmannslíkaminn svo fallegur. Ég hef alltaf verið dálítið fáklædd og eitthvað þannig. Ég elska líkamann minn mjög mikið. Mér finnst eins og allir ættu að vera það. Þannig að ég er bara að reyna að sýna fólki það, að elska sjálft sig. Þetta er líka easy money, fyrst og fremst. En þetta er list.“ Og hvað fannst vinum þínum og fjölskyldu um það þegar þú byrjaðir með þetta? „Vinum mínum er alveg sama. Þau eru bara að styðja mig. Þetta kom mömmu ekkert á óvart að ég væri að gera þetta. Pabbi segir mér alveg að hætta þessu.“ Já, hann er ekki hrifinn af þessu? „Nei, en ég er orðin tvítug svo hann getur ekki sagt neitt.“
Ung og upprennandi Samfélagsmiðlar Ástin og lífið Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Notch setur glæsihúsið á sölu Leikjavísir Halldóra Geirharðs og Nikko taka að sér fararstjórn á skíðum í Madonna á Ítalíu Lífið samstarf Missti röddina á ögurstundu Lífið Fleiri fréttir Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell Sjá meira