Handbolti

Eigum við ekki að segja að Gummi taki deildina, Alfreð Meistaradeildina og ég bikarinn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Berlin vann sinn fyrsta stóra titil á dögunum undir stjórn Dags sem hefur náð mögnuðum árangri hjá félaginu.
Berlin vann sinn fyrsta stóra titil á dögunum undir stjórn Dags sem hefur náð mögnuðum árangri hjá félaginu. Vísir/Getty
„Þetta er ekki skemmtileg staða sem við erum í. Ég er eiginlega feginn að það eru Íslendingar í báðum liðum sem geta orðið meistarar. Þá eru minni líkur á því að menn haldi að ég sé að gera einhverjum greiða,“ segir Dagur Sigurðsson, þjálfari Füchse Berlin.

Hann fer með lið sitt til Kiel á morgun en sá leikur skiptir gríðarlegu máli. Kiel á möguleika á titlinum ásamt Rhein-Neckar Löwen. Bæði lið eru með íslenska þjálfara – Alfreð Gíslason og Guðmund Guðmundsson – og leikmenn.

„Ég á vini á báðum stöðum. Bæði eru þjálfararnir vinir mínir sem og leikmennirnir. Ég veit samt að bæði Alfreð og Gummi myndu fara inn í leikinn af krafti rétt eins og ég mun láta mitt lið gera.“

Er með skröltandi lið

Lið Dags er ansi laskað og því ekki ástæða til mikillar bjartsýni fyrir leikinn.

„Það er búið að vera mikið um meiðsli og ég er með skröltandi lið. Bartlomiej Jaszka verður ekki með um helgina og þeir Konstantin Igropulo, Denis Spoljaric, Pavel Horak og Iker Romero eru spurningarmerki og munar um minna hjá okkur. Við munum berjast með allt sem við getum,“ segir Dagur.

Titilbaráttan gæti mjög líklega ráðist á markatölu og Dagur veit því sem er að lið Kiel mun gera allt sem það getur til þess að valta yfir hans lið.

„Kiel hefur verið að vinna sína leiki stórt. Það þýðir ekkert að grenja. Við mætum og berjumst. Það getur vel gerst að við fáum flengingu. Það hefur meira að segja gerst þegar við mætum með fullt lið gegn þeim. Maður fer samt ekki í leiki með buxurnar fullar heldur setur maður kassann út.“

HAMBURG, GERMANY - AUGUST 23: Dagur Sigurdsson, head coach of Berlin gestures during the second leg of the EHF Champions League play off game between and HSV Handball and Fuechse Berlin at O2 world on August 23, 2013 in Hamburg, Germany. (Photo by Stuart Franklin/Bongarts/Getty Images) Dagur Sigurðsson, Fuchse Berlin, handbolti
Dagur gerði sitt lið að bikarmeisturum á dögunum og hann sér alveg fyrir sér að íslensku þjálfararnir þrír geti endað með titil.

„Eigum við ekki að segja að Gummi taki deildina, Alfreð vinni Meistaradeildina og ég bikarinn. Þá verða allir sáttir,“ segir Dagur léttur.

Það var tilkynnt í gær að fjórir leikmenn væru á förum frá liði Dags og þar á meðal þýski landsliðsmaðurinn Sven-Sören Christophersen. Forráðamenn Berlin brugðust við með því að telja Spánverjann Iker Romero á að taka eitt ár í viðbót en hann hafði ákveðið að leggja skóna á hilluna.

„Hann hefur verið frábær í vetur. Það var alls ekki auðvelt að fá hann til að skipta um skoðun. Það var meira að segja í leikskránni okkar kveðjugrein um hann. Svo kom allt snöggt upp á og við brugðumst við. Hann hefur reynst okkur frábærlega.“


Tengdar fréttir

Allir á Íslandi munu horfa á okkur í sjónvarpinu

Það vekur eðlilega mikla athygli í Þýskalandi að gömlu herbergisfélagarnir í íslenska landsliðinu - Alfreð Gíslason og Guðmundur Guðmundsson - séu að fara að berjast um þýska meistaratitilinn í handbolta á laugardag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×