Mjúkir taktar með klassískum áhrifum Björn Teitsson skrifar 7. desember 2014 11:30 Kiasmos
Tónlist Kiasmos Kiasmos Erased Tapes Kiasmos er samstarfsverkefni þeirra Ólafs Arnalds, sem hefur getið sér ágætis orð fyrir tilraunakennda tónlist undir klassískum áhrifum, og hins færeyska Janusar Rasmussen, sem er þekktastur sem aðaldriffjöðrin í rafpoppsveitinni Bloodgroup. Hafa þeir félagar starfað saman um nokkurt skeið og sent frá sér stuttskífur með óreglulegu millibili. Í lok októbermánaðar leit fyrsta breiðskífa piltanna dagsins ljós og er gripurinn samnefndur samstarfsverkefninu/hljómsveitinni. Um er að ræða vandaða plötu sem flokkast til raftónlistar og sem slík er hún jafnvel nokkuð tilraunakennd. Klassísk áhrif frá Ólafi koma berlega í ljós og þá notast þeir félagar við talsvert af „live“ hljóðfærum sem gefa hljómnum aðra vídd. Taktarnir eru útpældir, hljómurinn er mjúkur, ef svo má að orði komast, og erfitt að henda reiður á hvort tónlistin sé dansvæn eða ekki. Kæmi til þess að platan yrði spiluð á klúbbi, væri það líklega rétt fyrir lokun þegar hugur gesta er orðinn tómur og fljótandi. Ef til vill myndi enska orðið „atmospheric“ hæfa hér – en því miður virðist íslenskan ekki geta fangað þá stemningu sem orðinu fylgir. En raftónlistaráhugamenn vita. Þeir vita. Þeir Ólafur og Janus ná að mynda ágætan heildarsvip, platan er jöfn og sterk frá upphafi til enda. Bestu lögin eru níu mínútna súpurnar Thrown og Burnt en hápunktinum er náð í Bent – sem er líklegasta lagið til að slá í gegn á klúbbagólfum Evrópu, hafi það ekki gert það nú þegar.Platan er sem fyrr segir einkar vönduð. Helsti galli hennar, ef galla skyldi kalla, væri að hún er of vönduð. Orðsporið sem fer af þeim Ólafi og Janusi er að þeir séu miklir fullkomnunarsinnar, sem er auðvitað jákvætt. En hljómurinn mætti vera aðeins meira „dirty.“ En það mætti auðvitað segja um allt. Já, allt!Niðurstaða:Flott skífa frá metnaðarfullum tónlistarmönnum sem hafa lagt mikla vinnu í verkið. Mögulega of mikla, hljómurinn mætti vera smá „dirty.“
Gagnrýni Menning Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Lífið samstarf Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Fékk innblástur fyrir Bleiku slaufunni í eigin meðferð Tíska og hönnun Fleiri fréttir Elskar uppþvottavélina meira en eiginkonuna Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Sjá meira