Reyni að hafa pakkann persónubundinn Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 15. desember 2014 12:30 Tinna Eik Rakelardóttir. Hvíti pappírinn var á þrotum, því setti hún örk úr bók undir. Vísir/Ernir
Þegar Tinna Eik Rakelardóttir pakkar inn gjöfum hugsar hún til hvers viðtakanda fyrir sig. Hún fórnaði bók til að nota sem fóður. „Ég hef lengi reynt að vanda mig við að pakka inn mínum gjöfum en breyti svolítið til ár frá ári,“ segir Tinna. „Áherslan er á að hafa pakkana smekklega og fallega. Þar sem ég þekki auðvitað þá sem fá gjafirnar hugsa ég til hvers og eins viðtakanda og reyni að hafa skreytinguna pínu persónubundna, þannig að hverjum og einum finnist sinn pakki fallegur.“ Nokkrir pakkar til reiðu enda nálgast jólin óðfluga.Tinna Eik kveðst geyma skreytingarefni milli ára og miða að því að nýta afganga. „Ég á alltaf eitthvað til og bæti svo inn í á milli, aðallega í IKEA, Tiger og Söstrene Grene. Hvíta pappírinn sem ég pakka inn í núna fékk ég samt í Svíþjóð, þannig að ég flutti hann inn. Hann er flottur, en svolítið þunnur. Af því að lítið er eftir af honum tímdi ég ekki að hafa tvær umferðir nú eins og ég hef alltaf gert, heldur tók bók sem er mér er ekki mikilvæg og reif úr henni blaðsíður sem ég fóðra með. Þess vegna sést smá letur í gegn.“ Spurð hvort hún hafi ekki getað notað Fréttablaðið svarar Tinna Eik: „Ég fann enga síðu sem var bara með texta og vildi ekki hafa myndir með!“
Jólafréttir Mest lesið Aðventustund í eldhúsinu Jól Lax með hvítlaukskartöflumauki og engifersósu Jólin Skreytir tréð fyrsta sunnudag í aðventu Jól Jólakransinn er ómissandi um jólin Jól Fígúrur fyrir krakkana Jól Átjánda piparkökuhúsakeppni Kötlu Jól Aðventa fyrir prinsessur Jólin Jólasveinar léku á als oddi á Selfossi Jól Nostrar við hverja einustu jólagjöf Jól Helga Möller: Vill hafa alla fjölskylduna hjá sér á jólunum Jól