Körfubolti

Teitur: Hlakka til að koma aftur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Teitur er aðstoðarþjálfari Friðriks Inga Rúnarssonar hjá Njarðvík.
Teitur er aðstoðarþjálfari Friðriks Inga Rúnarssonar hjá Njarðvík. fréttablaðið/valli
Tíundu umferð Domino's-deildar karla lýkur í kvöld þegar Stjarnan tekur á móti Njarðvík í Ásgarði í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Teitur Örlygsson, aðstoðarþjálfari Njarðvíkur, snýr aftur í Garðabæinn í fyrsta sinn eftir að hann lét af störfum sem þjálfari Stjörnunnar í sumar.

„Ég hlakka fyrst og fremst til að hitta gott fólk,“ segir Teitur sem hefur beðið lengi eftir þessum leik. „Ég leitaði eftir þessum leik í dagskrá vetrarins og svo skemmir ekki fyrir að þetta er sjónvarpsleikur líka. Það gerir þetta allt saman stærra,“ segir hann.

Teitur átti stóran þátt í þeim mikla uppgangi sem verið hefur í Stjörnunni síðustu árin. Stjarnan varð bikarmeistari í tvígang undir stjórn Teits og komst tvívegis í lokaúrslitin í úrslitakeppninni. Liðið hafði aldrei leikið til úrslita í bikarnum né komist í úrslitakeppnina áður en Teitur tók við í desember árið 2008, er liðið var í fallsæti úrvalsdeildar karla.

Liðin eru bæði með tíu stig í þéttum pakka um miðja deild og því mikilvæg stig í boði í kvöld. Stjörnumenn töpuðu fyrir toppliði KR í síðustu umferð en hafa verið á fínum skriði að undanförnu. Njarðvíkingar eru hins vegar að sleikja sárin eftir að hafa fallið óvænt úr leik gegn Skallagrími í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar.

„Þetta er heljarinnar pakki. Það eru nú tveir leikir eftir þar til að vetrarfríið hefst og getum við allt eftir gengi okkar komist upp í þriðja sætið eða fallið niður í það níunda,“ segir Teitur en Njarðvíkingar leita sér nú að nýjum Bandaríkjamanni eftir að samningi Dustins Salisbery var sagt upp. Salisbery spilar þó með Njarðvík fram að vetrarfríi.

„Það er óskandi að hann stígi upp og láti okkur þjálfarana líta illa út. Mér heyrist að hann vilji gera það sjálfur,“ segir Teitur og bætir við að samskiptin við Salisbery hafi verið góð. „Það voru engin leiðindi í kringum þetta enda algjör toppdrengur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×