Dómnefndin var ekki eins hrifin af laginu Unbroken sem María Ólafs flutti en lagið hafnaði í fjórða sæti hjá dómnefndinni og fékk fyrir það 7 stig. María var síðan í öðru sæti í fyrri símakosningunni með 21.437 atkvæði, eða 25,1 prósent greiddra atkvæða, og endaði því í öðru sæti með 17 stig og komst þar með í einvígið með Friðriki Dór þar sem hún hafði yfirburða sigur. Hún fékk 49 þúsund atkvæði frá áhorfendum eftir einvígið, eða 59,2 prósent greiddra atkvæða, en Friðrik Dór fékk 34.016 atkvæði, eða 40,8 prósent greiddra atkvæða, en alls voru greidd 83.353 atkvæði í einvíginu.

1. Í síðasta skipti - Friðrik Dór 6.970 atkvæði
2. Í kvöld - Elín Sif 6.857 atkvæði
3. Piltur og stúlka Björn & félagar 6.616 atkvæði
4. Myrkrið hljótt - Erna Hrönn 2.958 atkvæði
5. Þú leitar líka að mér - Hinemoa 2.738 atkvæði
6. Augnablik - Stefanía Svavarsdóttir 2.427
Seinna undankvöldið fór fram 7. febrúar en þar voru greidd 22.066 atkvæði og varð María Ólafsdóttir efst það kvöld með lagið Lítil skref.
1. Lítil skref - María Ólafsdóttir 6.428 atkvæði
2. Fyrir alla - Cadem 4.953 atkvæði
3. Fjaðrir - Sunday 3.185 atkvæði
4. Milljón augnablik Haukur Heiðar 2.899 atkvæði
5. Brotið gler - Bjarni Lárus Hall 2.351 atkvæði
6. Aldrei of seint - Regína Ósk 2.190 atkvæði