50+: Að hætta að vera þjónustumiðstöð fullorðinna barna Rakel Sveinsdóttir skrifar 25. október 2026 20:03 Því miður hættir okkur foreldrum til að vilja svo mikið leysa úr og létta á lífi barna okkar, að í raun erum við að skemma fyrir þeim og koma í veg fyrir tækifærin þeirra til að vaxa, þroskast og læra að taka ábyrgð á sjálfum sér. Vísir/Getty Jafn ótrúlega og það hljómar, rennur starfslýsingin okkar sem foreldri út á tíma. Ekki vegna þess að við hættum að vera foreldrar; vissulega höldum við því hlutverki áfram.
En þetta tveggja áratuga starf sem hefur falið í sér að vera framkvæmdastjóri, skutlari, fjármálastjóri, tilfinningalegur öryggispúði og svo mætti lengi telja er starfshlutverk sem einfaldlega á að renna sitt skeið. Fyrir hönd barna okkar. Og okkar sjálfra. Vissulega hættir þetta svo sem ekki um tvítugt – ólíkt því sem var í den. Því í dag má gera ráð fyrir að þegar börnin okkar verða tuttugu og eitthvað ára búi þau enn í herberginu sínu framan af og þegar þau flytja að heiman mæta þau þó reglulega í heimsókn með óhreina tauið og tóman maga. Við höldum því áfram að afgreiða. Föttum varla að þar með er gamla fjölskylduhreiðrið búið að breytast í þægilega þjónustumiðstöð með ókeypis Wifi, fullan ísskáp og sólarhringsneyðarþjónustu. Rétta þróunin er hins vegar þessi: Fyrir hönd barna okkar – og okkar sjálfra – eigum við að hætta að stjórna eða vera þjónustumiðstöð og læra að verða bakhjarlar. Sem þýðir að okkar nýja hlutverk er að standa á hliðarlínunni og klappa. Ekki að hlaupa inn á völlinn og taka vítaspyrnuna. Með öðrum orðum: Við þurfum að stíga skref til baka – til að gefa börnunum okkar pláss til að standa í lappirnar sjálf. Hvers vegna er þetta svona mikilvægt? Jú, vegna þess að rannsóknir sýna að ef við látum ekki af gamla starfshlutverkinu okkar erum við sjálf að koma í veg fyrir að börnin okkar fái tækifæri til að vaxa og þroskast. Dæmi: #1: Rannsóknir í þroskasálfræði sýna að seigla og sjálfstraust byggjast á því að takast á við afleiðingar eigin gjörða. Þegar foreldrar hlaupa alltaf til – hvort sem það er að greiða niður yfirdráttinn, skipuleggja tíma hjá lækninum eða taka að sér daglegan þrifnað – er verið að senda lúmsk skilaboð: „Ég treysti þér ekki til að sjá um þetta sjálfur.“ #2: Sálfræðingurinn Jeffrey Bernstein segir stærstu gildru foreldra með uppkomin börn felast í stjórnsemi, ráðleggingum og áhyggjum. Aðlögun foreldra felist í að hætta að reyna að laga eða létta líf þeirra, en læra þess í stað að verða bakhjarl. Er þetta auðveld breyting? Svarið er: Neihei. Hún er þræl-erfið meira að segja. En hér eru nokkur ráð sem geta gefið hugmyndir – öll mun flóknari í framkvæmd en virðast við fyrstu sýn. #1; Hættu að bjóða lausnir. Spurðu: Hvað ætlar þú að gera í þessu? #2; Settu húsnæðisreglur fyrir fullorðin börn sem búa enn heima: Það gerir þeim gott að taka þátt í rekstrinum, þrifum og kaupum á matnum. Þú ert ekki hótelhaldari. #3: Settu þér tilfinningaleg mörk. Þegar börnin okkar eru orðin fullorðin er það ekki okkar að hafa áhyggjur af lífi þeirra eða liggja andvaka yfir mistökum 25 ára einstaklings. Þau þurfa að læra að bera ábyrgð á sjálfum sér.
50+ Tengdar fréttir 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Við ætlum að segja það upphátt: Já, við ætlum að ræða nokkuð sem margir kannast við sem þó nokkurn létti. Svona í leyni. 6. september 2026 17:02 50+: Það má segja Nei við barnapössun Vissuð þið að það er til eitthvað sem kallast ömmu- og afakulnun? (e. grandparents burnout) Og að á netinu er heilmikið til af efni, skrifað bæði vestanhafs og austan, um það hvers vegna það sé í góðu lagi fyrir ömmur og afa að segja stundum Nei við barnapössun. 27. nóvember 2025 07:02 50+: Að sleppa takinu af krökkunum þegar þau eru flutt að heiman Munu þau hætta saman? Er hún/hann með einhverja stefnu um hvað hann/hún vil gera? Mun hann/hún einhvern tíma flytja aftur heim? 19. september 2025 07:02 Eldfimt 50+: Tengdamömmusögur Við erum mögulega að stíga inn á mjög hættulegt svæði. Eldfimt. Óþægilegt. Jafnvel svo viðkvæmt umræðuefni að 50+ pör eiga erfitt með umræðuna. 11. október 2026 20:01 50+: Erfiða tengdamamman og sonurinn á milli Brandarar um tengdó virðast vera alþjóðlegt fyrirbæri. Sögurnar eru óteljandi. Oft spaugilegar. Sumar skelfilegar. Aðrar dramatískar eða tilfinningalega erfiðar. 3. júní 2026 07:00 Mest lesið Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Lífið Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par Lífið Dýra steikin á matseðlinum er ekki þarna til að seljast Áskorun „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Lífið Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Lífið Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Lífið Stafrænir bílstjórar aka bráðum Hringveginn Leikjavísir ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Lífið Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Lífið Fleiri fréttir 50+: Að hætta að vera þjónustumiðstöð fullorðinna barna Dýra steikin á matseðlinum er ekki þarna til að seljast Þetta er undarlegt…: QWERTY-stafaruglið á símum og lyklaborðum 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, vann fjórfalt, meistaranám og flott starf Eldfimt 50+: Tengdamömmusögur Eitt „læk“ getur sprengt sambandið – hjá bæði tvítugum og áttræðum 50+: Er ég að verða heyrnarlaus eða eru allir farnir að öskra? Skemmtilega söguhornið: Allir geta orðið eins og skólatöskur í framan! Sjálfið: Hvers vegna finnst okkur við gera allt best sjálf? 50+: Ertu að verða (eða orðin/n) eins og pabbi þinn eða mamma? 50+: Ósjálfráða vinahreinsunin eftir fimmtugt Fegurðardrottning drepin eða einhver myrtur á hjólhýsasvæðinu Sjálfið okkar: Hvers vegna frestum við oft tveggja mínútna verkefnum? 50+: Svefnherbergisskilnaður Sjálfið okkar: Þynnkan eftir mannamót (samt drakkstu ekki neitt!) 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Hvers vegna teljum við alla vera að dæma okkur (þegar enginn er að fylgjast með)? Sjá meira
50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Við ætlum að segja það upphátt: Já, við ætlum að ræða nokkuð sem margir kannast við sem þó nokkurn létti. Svona í leyni. 6. september 2026 17:02
50+: Það má segja Nei við barnapössun Vissuð þið að það er til eitthvað sem kallast ömmu- og afakulnun? (e. grandparents burnout) Og að á netinu er heilmikið til af efni, skrifað bæði vestanhafs og austan, um það hvers vegna það sé í góðu lagi fyrir ömmur og afa að segja stundum Nei við barnapössun. 27. nóvember 2025 07:02
50+: Að sleppa takinu af krökkunum þegar þau eru flutt að heiman Munu þau hætta saman? Er hún/hann með einhverja stefnu um hvað hann/hún vil gera? Mun hann/hún einhvern tíma flytja aftur heim? 19. september 2025 07:02
Eldfimt 50+: Tengdamömmusögur Við erum mögulega að stíga inn á mjög hættulegt svæði. Eldfimt. Óþægilegt. Jafnvel svo viðkvæmt umræðuefni að 50+ pör eiga erfitt með umræðuna. 11. október 2026 20:01
50+: Erfiða tengdamamman og sonurinn á milli Brandarar um tengdó virðast vera alþjóðlegt fyrirbæri. Sögurnar eru óteljandi. Oft spaugilegar. Sumar skelfilegar. Aðrar dramatískar eða tilfinningalega erfiðar. 3. júní 2026 07:00