Erótískur leslisti sigga dögg skrifar 25. febrúar 2015 09:00 Kúrðu uppi í rúmi og leyfu ímyndunaraflinu að leika lausum hala Vísir/Getty
Nú keppast miðlar eins og Elle og Nerve að taka saman leslista um erótík sem gott er að ylja sér við þegar úti er frost og stinningskuldi. Þó þú hafir gefist upp á ónefndum skuggum í fleirtölu þá er ekki þar með sagt að erótík og kynlíf í skáldskap sé alltaf illa skrifað. Erótíkin drýpur af eftirfarandi bókum: - Les liasons dangereuse eftir Pierre Ambroise Laclos fjallar um ástar og kynlífsþríhyrning sem byggir á veðmáli tveggja yfirstéttar einstaklinga um hver geti komist yfir hvern. Bókin hefur einnig verið gerð að samnefndri bíómynd og veitti innblástur fyrir unglingamynd. - Tropic of Cancer eftir Henry Miller er bók sem var lengi vel bönnuð í Bandaríkjunum fyrir kynferðislegt innihald en er af mörgum talin ein af sígaldari verkum í erótík. - The sexual life of Catherine M. eftir Catherine Millet er sjálfsævisöguleg frásögn af kynferðislegum ævintýrum höfundarins. Bókin er klúr og komst fljótt á metsölulistann í Frakklandi. - Delta of Venus eftir Anais Nin er samansafn smásagna af kynlífsævintýrum sem var skrifað fyrir safnara. Bókin er að mati margra er eitt af meistaraverkum bókmenntalegrar erótíkur. Bíómynd hefur verið gerð eftir bókinni. - The story of O eftir Pauline Réage er ein af heilagri ritningum um margslungna heima BDSM svo ef bindingar og flengingar kitla þig þá er þetta pottþétt bók sem á heima á náttborðinu þínu. Ef þú nennir ekki að lesa þá er einnig búið að gera bíómynd eftir þessari bók. - Lady Chatterleys lover eftir D.H. Lawrence fjallar um framhjáld kvæntrar konu. Eins og með aðrar erótíkur þá rataði þessi á hvíta tjaldið. - Fanny Hill / Memoirs of a woman of pleasure eftir John Cleland er bók sem var bönnuð þegr hún kom út en sagan fjallar um líf og kynferðislegar upplifanir Fanny Hill.
Heilsa Mest lesið „Þetta var algjört bíómyndamóment“ Lífið Samband Gallagher-bræðra sagt á hálum ís Lífið Öldrun í hársverði - Fríða Rut gefur ráð Lífið samstarf Stjörnulífið: „Who the fuck is Kaleo?“ Lífið „Ekkert okkar grunaði að hann myndi fara þessa leið“ Lífið Ræðir það ekki í fjölskylduboði ef þú hittir frænda þinn á swing-viðburði Lífið Flottasti garður landsins er á Selfossi Lífið samstarf Hágæða merkjavara á geggjuðum afslætti út föstudaginn Lífið samstarf „Greyið, hann þarf að horfa á mig deyja“ Lífið Harrý rétti fram eins konar sáttahönd Lífið