Blóðtaka fyrir Fjölni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. febrúar 2015 11:37 Arnþór reynir að fara framhjá Hjálmari Stefánssyni, leikmanni Hauka. vísir/ernir
Arnþór Freyr Guðmundsson, leikmaður Fjölnis í Domino's deildinni í körfubolta, er á leið til Spánar en hann hefur samið við 4. deildarliðið Soliss Alcázar. Þetta kemur fram á Karfan.is. Arnþór hefur áður leikið á Spáni, með liði Albacete sem er í sömu deild og sama riðli og Alcázar. Í samtali við Karfan.is segir Arnþór það hafa verið erfiða ákvörðun að yfirgefa Fjölnisliðið sem er í harðri fallbaráttu í Domino's deildinni. „Hrikalega erfitt og það var lítið sofið um nóttina eftir að ákvörðunin var tekin en þetta varð niðurstaðan og mér fannst ég ekki geta hafnað þessu tækifæri,“ sagði Arnþór og bætti við: „Það vantaði bakvörð í liðið, skotmann sem getur leyst af í stöðu leikstjórnanda, ekki ósvipað hlutverk og ég skilaði hjá Albacete ásamt því auðvitað að færa vörninni smá lím.“ Arnþór segir Grafavogsliðið hafa sýnt ákvörðun sinni skilning en Fjölnir er í 11. og næstneðsta sæti Domino's deildarinnar með átta stig, líkt og Skallagrímur og ÍR, þegar fjórar umferðir eru eftir af deildarkeppninni. Arnþór, sem er 23 ára, spilaði vel með Fjölni í vetur en hann skoraði 15,8 stig, tók 4,6 fráköst og 4,3 stoðsendingar að meðaltali í 18 leikjum.
Dominos-deild karla Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Íslenski boltinn Viðar Ari fjórbrotinn Fótbolti Búið spil hjá fyrirliðanum en Barcelona má fá nýjan mann Fótbolti Fleiri fréttir Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Sjá meira