Aníta: Aðalmarkmiðið var að komast í úrslit Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. mars 2015 07:45 Aníta var lengi vel með forystu í úrslitahlaupinu. vísir/getty
Aníta Hinriksdóttir, hlaupakona úr ÍR, hafnaði í 5. sæti í 800 metra hlaupi á Evrópumeistaramótinu í frjálsum íþróttum innanhúss sem fram fór í Prag um helgina. Aníta, sem varð 19 ára fyrr á þessu ári, var yngst þeirra fimm sem hlupu til úrslita í gær. Selina Büchel frá Sviss bar sigur úr býtum í hlaupinu en hún kom í mark á tímanum 2:01,95 sekúndum, fjórum hundraðshlutum úr sekúndu á undan Yekaterinu Poistogovu frá Rússlandi.Markmiðið var að komast í úrslit „Ég veit það ekki alveg,“ sagði Aníta í samtali við Fréttablaðið í gær, aðspurð hvað henni fyndist um úrslitahlaupið. „Aðalmarkmiðið var komast í úrslit og ég er ánægð að hafa náð því. Maður verður að reyna sig gegn þeim bestu á stórmótum og ég er alveg að komast í þennan klassa. Allar stelpurnar í úrslitunum eru sterkar og jafnar og það gat allt gerst,“ bætti Aníta við. Aníta segir að reynslan frá EM í Prag muni nýtast vel í framtíðinni: „Ég er ánægð með mótið í heild sinni og þetta var skemmtileg reynsla. Ég verð með meira sjálfstraust á næsta móti.“ Aníta náði forystu í úrslitahlaupinu á fyrsta hring en gaf aðeins eftir á lokasprettinum og endaði að lokum í fimmta og neðsta sæti. Aníta kom í mark á 2:02,74 mínútum en Íslandsmetið, sem hún setti í undanrásunum á föstudaginn, er 2:01,56 mínútur. Sá tími var sá næstbesti sem náðist á EM í Prag, en sú eina sem náði betri tíma var áðurnefnd Poistogova, bronsverðlaunahafi frá síðustu Ólympíuleikum. Poistogova var í sama riðli og Aníta í undanrásunum en sú rússneska kom í mark á tímanum 2:01,44, tólf hundraðshlutum úr sekúndu á undan Anítu. Þær mættust svo aftur í úrslitunum.Aníta var með næstbesta tímann, bæði í undanrásunum og undanúrslitunum.vísir/gettyEndaspretturinn skiptir öllu Hlaup sem þessi eru oftar en ekki mjög taktísk, þar sem keppendur reyna að stjórna hraðanum þannig að þeir eigi nóg eftir á tankinum fyrir endasprettinn. „Það gerist mest á síðustu 70 metrunum og ég hélt ekki alveg fókus undir lokin,“ sagði Aníta og bætti því við að á þessum tímapunkti á ferli hennar væri sú taktík að keyra upp hraðann sú öruggasta. Önnur hlaupakona sem er þekkt fyrir að keyra upp hraðann og taka frumkvæði er hin breska Jenny Meadows sem vann til gullverðlauna á EM innanhúss árið 2011. Meadows var í sama riðli og Aníta í undanúrslitunum og kom fjórða í mark á tímanum 2:02,40, níu hundraðshlutum úr sekúndu á eftir Anítu sem endaði í þriðja sæti. Staðan breyttist hins vegar eftir að undanúrslitunum lauk. Fyrst var hin rússneska Anastasiya Bazdyreva dæmd úr leik fyrir að stíga út af hlaupabrautinni þegar hún tók fram úr Anítu á lokasprettinum. Sjálf sagðist Aníta ekki hafa tekið eftir því í hita augnabliksins og atvikið hafi ekki truflað hana neitt. Bretar kærðu niðurstöðuna og Bazdyreva var í kjölfarið dæmd úr leik. Aníta færðist því upp í annað sætið og Meadows upp í það þriðja og komst þar með í úrslitin. En stuttu fyrir úrslitahlaupið dró sig Meadows út úr keppni vegna veikinda. Þetta breytta landslag hafði áhrif á það hvernig Aníta nálgaðist hlaupið. „Hún vill keyra upp hraðann og það hefði verið þægilegt að hanga fyrir aftan hana,“ sagði Aníta sem á eftir að vinna meira í taktíkinni á næstu mánuðum. En hvað tekur nú við hjá þessari efnilegu hlaupakonu sem nálgast toppinn óðfluga? „Nú ætla ég að hvíla mig aðeins og síðan taka við æfingabúðir fyrir sumarið,“ sagði Aníta að lokum.
Frjálsar íþróttir Tengdar fréttir Aníta með næstbesta tímann í undanrásum og undanúrslitum Aníta Hinriksdóttir náði næstbesta tímanum í undanrásunum og undanúrslitunum í 800 metra hlaupi á EM innanhúss í Prag. Hún lenti svo í fimmta sæti í úrslitunum í dag. 8. mars 2015 15:19 Aníta: Ég vil ná gullinu eins og allar stelpurnar hér Aníta Hinriksdóttir var tekin í viðtal fyrir heimasíðu evrópska frjálsíþróttasambandsins eftir að íslenska hlaupadrottningin tryggði sér sæti í undanúrslitunum með mjög flottu hlaupi í undanrásum 800 metra hlaups kvenna. 6. mars 2015 13:45 Büchel aðeins 4/100 úr sekúndu á undan Postogovu Aníta Hinriksdóttir endaði í 5. og neðsta sæti í úrslitum í 800 metra hlaupi á EM í frjálsum íþróttum innanhúss í Prag í dag. 8. mars 2015 14:43 Hrafnhild 0,02 sekúndum frá Íslandsmetinu Hrafnhild Eir Hermóðsdóttir var nálægt því að bæta Íslandsmet sitt í 60 metra hlaupi á Evrópumeistaramótinu í frjálsum íþróttum innanhús í Prag í morgun. 7. mars 2015 09:35 Aníta í úrslit | Kom í mark á 2:02,31 Aníta Hinriksdóttir komst nú rétt í þessu í úrslit í 800 metra hlaupi á Evrópumeistaramótinu í frjálsum íþróttum innanhúss í Prag. 7. mars 2015 17:13 Einar Daði ekki með í sjöþrautinni vegna veikinda Ekkert verður af þátttöku Einars Daða Lárussonar á EM frjálsum íþróttum innanhúss í Prag um helgina. 7. mars 2015 09:53 Basdyreva dæmd úr leik | Aníta með næst besta tímann Anastasia Basdyreva frá Rússland verður ekki með í úrslitum í 800 metra hlaupi kvenna á EM í frjálsum íþróttum á morgun. 7. mars 2015 18:22 Aníta í fimmta sæti Aníta náði ekki á pall í Prag í úrslitunum, en hún varð í fimmta sæti af fimm keppendum. 8. mars 2015 14:24 Þjálfari Anítu: Er í sama klassa og þessar stelpur Aníta Hinriksdóttir endaði í 5. sæti í 800 metra hlaupi á sínu fyrsta móti í fullorðinsflokki. 8. mars 2015 15:25 Aníta vs. Poistogova: Taka tvö Sem kunnugt er tryggði Aníta Hinriksdóttir sér í gær sæti í úrslitum í 800 metra hlaupi á EM innanhúss í frjálsum íþróttum sem haldið er í Prag. 8. mars 2015 11:00 Aníta gæti verið nálægt verðlaunapallinum í Prag Aníta Hinriksdóttir hefur keppni í dag á sínu fjórða stórmóti fullorðinna. Þjálfarinn Gunnar Páll Jóakimsson er bjartsýnn á gengi hennar á EM í Prag og segir Anítu vera reynslunni ríkari frá fyrri stórmótum sínum. 6. mars 2015 07:45 Aníta tekin í lyfjapróf eftir methlaupið sitt Aníta Hinriksdóttir setti nýtt Íslands- og Evrópumet í dag þegar hún tryggði sér með glæsibrag sæti í undanúrslitunum í 800 metra hlaupi kvenna á EM innanhúss í Prag. 6. mars 2015 13:11 Frábært fyrir Anítu að setja met á stórmóti Aníta Hinriksdóttir setti nýtt Íslands- og Evrópumet unglinga í undanrásum 800 metra hlaups kvenna á EM í frjálsum í Prag í gær. Keppir í undanúrslitum í dag. 7. mars 2015 08:00 Aníta með næstbesta tímann inn í undanúrslitin Aníta Hinriksdóttir náði öðrum besta tímanum í undanrásum 800 metra hlaups kvenna á Evrópumótinu í frjálsum íþróttum innanhúss. 6. mars 2015 11:45 Aníta með bæði Íslandsmet og Evrópumet unglinga Aníta Hinriksdóttir tryggði sér sæti í undanúrslitum í 800 metra hlaupi kvenna og setti í leiðinni bæði nýtt Íslandsmet og nýtt Evrópumet unglinga. 6. mars 2015 11:24 Mest lesið Bandaríkin áfram en Kanada úr leik eftir vítaspyrnukeppni Fótbolti Tekur Martinez við hönskunum hjá United? Fótbolti „Ég hef aldrei séð aðrar eins tölur“ Fótbolti Kane afgreiddi Brassana Fótbolti „Gaman að skora og ég held að allir viti hvað Víkingur er fyrir mér“ Sport Eina konan í tækninefnd FIFA á HM: Ég er langsigursælust af þeim öllum Fótbolti Uppgjörið: KR - FH 3-2 | Eiður Gauti hetja KR-inga Íslenski boltinn Sextán manns í fullu starfi við að þjónusta Ronaldo Fótbolti Paul Ince ákærður fyrir ölvunarakstur Fótbolti Íslandsmeistarar krýndir á Íslandsmótinu í hestaíþróttum Sport Fleiri fréttir Ber engan kala til Antonelli eftir áreksturinn Sjáðu tvennur Eiðs og Nikolaj, aukaspyrnu Kjartans og öll hin mörkin Bandaríkin áfram en Kanada úr leik eftir vítaspyrnukeppni Tekur Martinez við hönskunum hjá United? Paul Ince ákærður fyrir ölvunarakstur Eina konan í tækninefnd FIFA á HM: Ég er langsigursælust af þeim öllum Kane afgreiddi Brassana „Gaman að skora og ég held að allir viti hvað Víkingur er fyrir mér“ Íslandsmeistarar krýndir á Íslandsmótinu í hestaíþróttum „Ég hef aldrei séð aðrar eins tölur“ Joao Pedro til Chelsea Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn Uppgjörið: Víkingur - Afturelding 2-1 | Víkingar sluppu með skrekkinn Uppgjörið: KR - FH 3-2 | Eiður Gauti hetja KR-inga Evrópumeistararnir rúlluðu yfir Messi og félaga James tekur einn dans enn í það minnsta Færeyingar unnu bronsið á HM U21 í handbolta Uppgjörið: Vestri - ÍA 0-2 | Sigur í fyrsta leik Lárusar Orra Uppgjörið: Fram - ÍBV 2-0 | Sanngjarn sigur heimamanna Sextán manns í fullu starfi við að þjónusta Ronaldo Norris vann í Austurríki og minnkaði forskot liðsfélagans Hverju breytir Lárus Orri hjá Skagaliðinu? Senda konurnar í Evrópukeppni en ekki karlana Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Leikmaðurinn sem Liverpool ætlar að selja í sumar valinn bestur á EM Setti heimsmet á Íslandsmótinu í hestaíþróttum Stelpurnar stungu sér til sunds í vatninu Lenti ofan á öðrum bíl í Formúlu 2 Útskrifuð af sjúkrahúsinu og gæti verið með á EM „Mér finnst þetta vera brandari“ Sjá meira
Aníta með næstbesta tímann í undanrásum og undanúrslitum Aníta Hinriksdóttir náði næstbesta tímanum í undanrásunum og undanúrslitunum í 800 metra hlaupi á EM innanhúss í Prag. Hún lenti svo í fimmta sæti í úrslitunum í dag. 8. mars 2015 15:19
Aníta: Ég vil ná gullinu eins og allar stelpurnar hér Aníta Hinriksdóttir var tekin í viðtal fyrir heimasíðu evrópska frjálsíþróttasambandsins eftir að íslenska hlaupadrottningin tryggði sér sæti í undanúrslitunum með mjög flottu hlaupi í undanrásum 800 metra hlaups kvenna. 6. mars 2015 13:45
Büchel aðeins 4/100 úr sekúndu á undan Postogovu Aníta Hinriksdóttir endaði í 5. og neðsta sæti í úrslitum í 800 metra hlaupi á EM í frjálsum íþróttum innanhúss í Prag í dag. 8. mars 2015 14:43
Hrafnhild 0,02 sekúndum frá Íslandsmetinu Hrafnhild Eir Hermóðsdóttir var nálægt því að bæta Íslandsmet sitt í 60 metra hlaupi á Evrópumeistaramótinu í frjálsum íþróttum innanhús í Prag í morgun. 7. mars 2015 09:35
Aníta í úrslit | Kom í mark á 2:02,31 Aníta Hinriksdóttir komst nú rétt í þessu í úrslit í 800 metra hlaupi á Evrópumeistaramótinu í frjálsum íþróttum innanhúss í Prag. 7. mars 2015 17:13
Einar Daði ekki með í sjöþrautinni vegna veikinda Ekkert verður af þátttöku Einars Daða Lárussonar á EM frjálsum íþróttum innanhúss í Prag um helgina. 7. mars 2015 09:53
Basdyreva dæmd úr leik | Aníta með næst besta tímann Anastasia Basdyreva frá Rússland verður ekki með í úrslitum í 800 metra hlaupi kvenna á EM í frjálsum íþróttum á morgun. 7. mars 2015 18:22
Aníta í fimmta sæti Aníta náði ekki á pall í Prag í úrslitunum, en hún varð í fimmta sæti af fimm keppendum. 8. mars 2015 14:24
Þjálfari Anítu: Er í sama klassa og þessar stelpur Aníta Hinriksdóttir endaði í 5. sæti í 800 metra hlaupi á sínu fyrsta móti í fullorðinsflokki. 8. mars 2015 15:25
Aníta vs. Poistogova: Taka tvö Sem kunnugt er tryggði Aníta Hinriksdóttir sér í gær sæti í úrslitum í 800 metra hlaupi á EM innanhúss í frjálsum íþróttum sem haldið er í Prag. 8. mars 2015 11:00
Aníta gæti verið nálægt verðlaunapallinum í Prag Aníta Hinriksdóttir hefur keppni í dag á sínu fjórða stórmóti fullorðinna. Þjálfarinn Gunnar Páll Jóakimsson er bjartsýnn á gengi hennar á EM í Prag og segir Anítu vera reynslunni ríkari frá fyrri stórmótum sínum. 6. mars 2015 07:45
Aníta tekin í lyfjapróf eftir methlaupið sitt Aníta Hinriksdóttir setti nýtt Íslands- og Evrópumet í dag þegar hún tryggði sér með glæsibrag sæti í undanúrslitunum í 800 metra hlaupi kvenna á EM innanhúss í Prag. 6. mars 2015 13:11
Frábært fyrir Anítu að setja met á stórmóti Aníta Hinriksdóttir setti nýtt Íslands- og Evrópumet unglinga í undanrásum 800 metra hlaups kvenna á EM í frjálsum í Prag í gær. Keppir í undanúrslitum í dag. 7. mars 2015 08:00
Aníta með næstbesta tímann inn í undanúrslitin Aníta Hinriksdóttir náði öðrum besta tímanum í undanrásum 800 metra hlaups kvenna á Evrópumótinu í frjálsum íþróttum innanhúss. 6. mars 2015 11:45
Aníta með bæði Íslandsmet og Evrópumet unglinga Aníta Hinriksdóttir tryggði sér sæti í undanúrslitum í 800 metra hlaupi kvenna og setti í leiðinni bæði nýtt Íslandsmet og nýtt Evrópumet unglinga. 6. mars 2015 11:24