Alexander og félagar í vondum málum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. mars 2015 19:39 Alexander Petersson. Vísir/Getty
Alexander Petersson og félagar í þýska liðinu Rhein-Neckar Löwen eru ekki í alltof góðum málum eftir fyrri leik liðsins í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar i handbolta. Rhein-Neckar Löwen tapaði með fjögurra marka mun á heimavelli í kvöld á móti ungverska liðinu Pick Szeged, 34-30. Liðið þarf því að vinna upp þennan mun í seinni leiknum eftir níu daga ætli Ljónin að komast í átta liða úrslitin en þá verða þeir hinsvegar á útivelli. Alexander Petersson skoraði fjögur mörk úr sex skotum en var settur á bekkinn þegar ekkert gekk í sókninni um miðjan seinni hálfleikinn og hann var búinn að tapa tveimur boltum í röð. Stefán Rafn Sigurmannsson spilaði ekki. Uwe Gensheimer var markahæstur hjá Rhein-Neckar Löwen með átta mörk, Andy Schmid skoraði fimm mörk og þeir Alexander og Bjarte Myrhol voru með fjögur mörk hvor. Löwen-liði var einu marki yfir í hálfleik, 17-16, eftir að hafa skorað fjögur síðustu mörk hálfleiksins en Pick Szeged komst í 8-4 í upphafi leiks. Rhein-Neckar Löwen tók leikhlé þegar ein og hálf mínúta var eftir og staðan var 33-30. Löwen náði hinsvegar ekki að skora og Pick Szeged fór upp og jók muninn í fjögur mörk. Þessi tveggja marka sveifla gæti verið dýrkeypt fyrir Ljónin í seinni leiknum í Ungverjalandi.
Handbolti Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Íslenski boltinn BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Clark slegin í augað í frumraun Körfubolti Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Fleiri fréttir Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Bjarki Már og Orri Freyr með stórsigra í Meistaradeildinni Uppgjörið: FH - ÍBV 33-30 | Góður kafli í fyrri hálfleik skilaði sigri FH-inga Framarar flæktir í óskýrum reglum HSÍ: „Þetta er alveg galið dæmi“ Haukur komið að nítján mörkum í fyrstu tveimur leikjunum í Meistaradeildinni Selfoss átti lítið í Íslandsmeistara Vals „Stefnum á að vera í þessum efri hluta“ Uppgjörið: ÍR - ÍBV 22-22 | Heimakonur komnar á blað Haukur magnaður í sigri á Viktor Gísla og félögum Alfa Brá og Katrín Anna í landsliðið Tímabilið byrjar vel hjá Bjarka sem varð markahæstur í stórsigri Gummersbach gaf mikið eftir í seinni hálfleik Sjá meira