Innlent

Framsóknarmenn leggja til að lögreglu verði veittar forvirkar rannsóknarheimildir

Atli Ísleifsson skrifar
Flokksþing Framsóknarflokksins fer fram um helgina.
Flokksþing Framsóknarflokksins fer fram um helgina. Vísir/Valli
Framsóknarflokkurinn vill að lögreglu verði veitt forvirkar rannsóknarheimildir verði drög að ályktunum flokksþings Framsóknar samþykkt. Flokksþing Framsóknarflokksins fer fram um helgina.

Í drögum að ályktunum flokksþingsins, sem birt voru á heimasíðu flokksins í dag, segir að „til að sporna gegn skipulagðri glæpastarfsemi, „s.s. innflutningi fíkniefna, mansali, hryðjuverkum og auknum umsvifum skipulagðra glæpagengja, skal veita lögreglunni forvirkar rannsóknarheimildir sambærilegar þeim sem lögregla í öðrum norrænum ríkjum hefur.“

Með forvirkum rannsóknarheimildum fær lögregla rýmri heimild til að rannsaka hugsanlegt eða ætlað brot í þeim tilgangi að koma í veg fyrir það.

Ólöf Nordal innanríkisráðherra greindi frá því í febrúar síðastliðinn að hún telji rétt að skoða hvort veita eigi lögreglunni forvirkar rannsóknarheimildir, meðal annars til að koma í veg fyrir að alþjóðleg glæpa- eða hryðjuverkasamtök nái fótfestu hér á landi.

Í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í lok febrúarmánaðar sagði hún að ekki væri unnið að gerð frumvarps um forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu og að engin áform væru uppi um gerð slíks frumvarps.

Þá nefndi ráðherra að í innanríkisráðuneytinu væri unnið að gerð skýrslu um innanríkis- og öryggismál sem væri ætlað að verða grunnur að frekari umræðu um þessi mál.


Tengdar fréttir

Rétt að skoða forvirkar rannsóknarheimildir

Ólöf Nordal innanríkisráðherra telur rétt að skoða hvort veita eigi lögreglunni forvirkar rannsóknarheimildir til að koma í veg fyrir að alþjóðleg glæpa- og hryðjuverkasamtök nái fótfestu hér á landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×