Innlent

Húsnæðismálin mæta enn afgangi

Jakob Bjarnar skrifar
Ef marka má orð Eyglóar í Viðskiptablaðinu hefur hún nú horfið frá hugmyndum um sumarþing vegna ófremdarástands í húsnæðismálum.
Ef marka má orð Eyglóar í Viðskiptablaðinu hefur hún nú horfið frá hugmyndum um sumarþing vegna ófremdarástands í húsnæðismálum. vísir/vilhelm
Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra segir, í viðtali við Viðskiptablaðið sem birtist í dag, að hún ætli að leggja fram frumvörp í húsnæðismálum fram á næsta haustþingi, takist það ekki á þessu þingi. Þetta þýðir að metnaðarfullar yfirlýsingar hennar í Fréttablaðinu 27. mars síðastliðinn, þess efnist að takist ekki að afgreiða þessi mál á yfirstandandi þingi skuli boða til sumarþings, eru nú marklausar.

„Ef einhvern tíma er ástæða til þess að halda sumarþing er það vegna þessara mála. Alþingi verður að starfa eins lengi og þarf til að klára þessi mikilvægu mál. Allur vinnumarkaðurinn er undir og við verðum að afgreiða þessi mál áður en Alþingi fer í frí,“ sagði Eygló þá. En hún er nú, samkvæmt þessu, búin að afskrifa allar hugmyndir um sumarþing.

Úr Viðskiptablaðinu.
Frumvörpin snúa að stuðningi vegna félagslegs húsnæðis, húsaleigubótakerfi, húsaleigusamningum og málefnum tekjulágra leigjenda. Þá verður tekið á ólíku búsetuformi. Eygló hefur boðað framlagningu frumvarpa sem miða að róttækum breytingum og umbótum í húsnæðiskerfinu allt frá því þessi ríkisstjórn tók við fyrir um tveimur árum, nánar tiltekið í maí 2013.

Eftir 1. apríl rann út frestur til að koma frumvörpum dagskrá fyrir sumarhlé, þannig að ólíklegt verður að teljast að frumvörp um húsnæðismál líti dagsins ljós fyrr en í haust, í fyrsta lagi. Eygló segir Viðskiptablaðinu að: „Um leið og ég fæ kostnaðarmatið mun ég leggja áherslu það að fá að leggja frumvörpin fram með afbrigðum," segir Eygló samtali við Viðskiptablaðið.


Tengdar fréttir

Stór mál á síðustu stundu

Fjögur stór og umdeild mál um veiðigjöld, makríl og húsnæðismál voru afgreidd úr ríkisstjórn í gær. Fundað var fram á kvöld í þingflokkum stjórnarflokka. Stjórnarandstaðan kallar eftir vandvirkni en ekki hroðvirkni.

Sumarþing ef með þarf til að ljúka húsnæðismálunum

Frumvörp velferðarráðherra um húsnæðismál eru á lokastigi. Tekin fyrir í ríkisstjórn í dag eða á þriðjudag. Ráðherra segir nauðsynlegt að ljúka málunum sem fyrst vegna mikilvægis þeirra fyrir vinnumarkaðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×