Sampdoria vill fá Mario Balotelli frá Liverpool Tómas Þór Þórðarson skrifar 8. maí 2015 09:00 Mario Balotelli hefur ekkert getað í vetur. vísir/getty
Eftir skelfilega endurkomu í ensku úrvalsdeildina í fótbolta virðist alveg ljóst að Mario Balotelli verður ekki í herbúðum Liverpool á næstu leiktíð. Ítalski framherjinn, sem spilaði með Manchester City á árum áður, hefur aðeins skorað eitt mark í 16 leikjum og verið svakalega gagnrýndur fyrir frammistöðu sína á tímabilinu. Samkvæmt enska blaðinu Daily Mail hefur ítalska A-deildarliðið Sampdoria áhuga á að fá Balotelli frá Liverpool, en orð forseta félagsins á dögunum hafa vafalítið kveikt í þeim orðrómi. Massimo Ferrero, forseti Sampdoria, er einn mesti vélbyssukjafturinn í evrópskum fótbolta, en hann er maðurinn sem sagði Rafael Benítez of feitan til að þjálfa lið sitt. Ferrero sagði aftur á móti í viðtali við Gazetta TV á dögunum að kæmi Balotelli til Sampdoria myndi hann aftur fara að skora mörk. „Hér myndi enginn rífast í honum ef hann myndi ekki skora. Hann hefði bara hægt um sig og væri ánægður,“ sagði Ferrero. Hann kenndi lífstíl framherjans um markaþurrðina, en Balotelli finnst hann fá of há laun og kaupa sér of marga sportbíla. „Við myndum bara gefa honum brauð, vatn og Bianchina-bíl frekar en Ferrari. Þá er ég viss um að hann fari að skora aftur,“ sagði Massimo Ferrero
Enski boltinn Ítalski boltinn Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Argentíska landsliðið má búast við sekt Fótbolti Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Íslenski boltinn Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Fleiri fréttir Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Sjá meira