Innlent

Óskað eftir umsögnum um drög að reglugerð um bílaleigubíla

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Bílaleigubílar
Bílaleigubílar vísir/daníel
Ný lög um leigu skráningarskyldra ökutækja voru samþykkt á Alþingi þann 30. júní síðastliðinn en lögin taka nú til dæmis til útleigu á öllum skráningarskyldum ökutækjum ásamt því að veita Samgöngustofu ríkari eftirlitsheimildir með starfsemi leiganna.

Einnig er nýmæli að heimila leigu einkabíla að tilstuðlan leigumiðlana, svokallaðra einkaleiga. Ný reglugerð á grundvelli laganna mun fljótlega taka gildi og eru drög að henni nú birt og óskað eftir umsögnum.

Umsagnarfrestur er til 29. júlí næstkomandi og skulu athugasemdir sendar á netfangið postur@anr.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×