Gekk um götur Reykjavíkur og heyrði ekkert nema kynlífsstunur Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 3. júlí 2015 12:00 Stuart Murdoch söng eins og engill á Ásbrú í gærkvöldi. Hér þenur hann raddböndin. Vísir/Ernir „
Eru ekki einhverjir rosalega góðir dansarar hérna inni,“ kallaði Stuart Murdoch, söngvari Belle & Sebastian á tónleikum sveitarinnar á ATP tónleikahátíðinni á Ásbrú í gærkvöldi. Hljómsveitin var búin að koma tónleikagestum í gott stuð og nú skyldi dansað. Þetta litla dæmi lýsir vel skosku hljómsveitinni sem virðist hafa það viðhorf til lífsins að þess skuli njóta, brosandi og hafa gaman. Þeir tónleikagestir sem töldu sig hafa eitthvað fram að færa á dansgólfinu voru dregnir á svið og næsta lag tók við. Meðal dansara á sviðinu var grínistinn Jóhann Alfreð Kristinsson úr Mið-Íslandi sem hafði lítið á móti því að dansa með skosku átrúnaðargoðunum. Virtist svo vel fara á með Jóa og Stevie Jackson, öðrum söngvara og gítarleikara sveitarinnar, að þeir virtust sammælast um að reykja saman eftir tónleika. Hvort af því varð verður að koma í ljós síðar.Að neðan má sjá Jóhann Alfreð stíga dansinn á sviðinu í gær.Get ekki hugsað mér fullkomnari go-go dansara fyrir Belle & Sebastian en Jóhann Alfreð!Posted by Ragnar Hansson on Thursday, July 2, 2015Fengu íslenska aðstoð Skosku gleðigjafarnir, sem hafa spilað saman frá 1996, sóttu Ísland heim sumarið 2006 og spiluðu með þriggja daga millibili á Nasa í Reykjavík og á Bræðslunni á Borgarfirði Eystra. Sú heimsókn fór vel ofan í Íslendinga og virtust tónleikagestir í gær skemmta sér vel. Íslensk strengjasveit skipuð Ingrid Karlsdóttur, Laufey Jensdóttur, Guðrúnu Hrund Harðardóttur, Eiríki Rafni Stefánssin og Charlie Cross spilaði með á tónleikunum í gær. Úr varð því ellefu manna stórsveit en fyrir eru sex meðlimir skosku sveitarinnar. Sveitin hefur afkastað miklu á tuttugu ára ferli og því ljóst að unnendur myndu aðeins fá að heyra brot af slögurum sveitarinnar.Sjáðu einnig:Iggy Pop 68 ára reif sig úr að ofan Meðal laga sem sveitin tók voru I Didn't See it Coming, I'm a Cuckoo, If You Find Yourself Caught in Love og The Boy with the Arab Strap. Stemmningin náði líklega hápunkti í síðastnefnda laginu sem er eitt þeirra allra frægasta og vinsælasta.Þessi er aldrei nógu þungur.Vísir/ErnirBirtan mögnuð Stuart Murdoch og félagar sendu fólki út í sal afmæliskveðju og spilaði Stevie afmælislagið fyrir einn tónleikagesta við góðar undirtektir. Þá rifjaði Stuart um heimsókn þeirra til Íslands fyrir níu árum og lofaði land og þjóð. Benti hann á hina sturluðu staðreynd, að hans mati, að úti væri bjart þótt komið væri vel fram yfir miðnætti. Við það tilefni rifjaðist upp fyrir honum göngutúr hans um miðborg Reykjavíkur sumarið 2006, að loknum tónleikum sveitarinnar, þar sem bærinn iðaði af lífi hvort sem var á skemmtistöðum eða í svefnherbergjum íbúa bæjarins. Þannig hefði hann heyrt kynlífsstunur nánast í hvert skipti sem hann gekk framhjá húsi í miðbænum með opinn glugga. Greinilegt væri að fólk kynni að njóta lífsins á Íslandi á sumarin.
ATP í Keflavík Tengdar fréttir Fylgstu með ATP á Twitter og Instagram Tónlistarhátíðin All Tomorrows Parties, eða ATP, hófst í dag en þetta er í þriðja sinn sem hátíðin er haldin hér á landi. Á meðal þeirra sem koma fram í kvöld eru Belle and Sebastian og Iggy Pop. 2. júlí 2015 16:06 „Bestu móttökur sem við höfum nokkurn tímann fengið“ Bandaríska hip-hop sveitin Public Enemy tróð upp á tónlistarhátíðinni ATP í Reykjanesbæ í kvöld. 2. júlí 2015 22:56 Sjáðu myndirnar frá ATP: 68 ára gamall Iggy Pop ber að ofan Belle & Sebastian, Iggy Pop og Public Enemy voru á meðal þeirra listamanna sem skemmtu hressum tónleikagestum á Ásbrú á fyrsta kvöldi ATP. 3. júlí 2015 09:57 Mest lesið Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið Stefán Teitur á skeljarnar Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp Joe Don Baker látinn Bíó og sjónvarp Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Lífið Fleiri fréttir „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Sjá meira
Fylgstu með ATP á Twitter og Instagram Tónlistarhátíðin All Tomorrows Parties, eða ATP, hófst í dag en þetta er í þriðja sinn sem hátíðin er haldin hér á landi. Á meðal þeirra sem koma fram í kvöld eru Belle and Sebastian og Iggy Pop. 2. júlí 2015 16:06
„Bestu móttökur sem við höfum nokkurn tímann fengið“ Bandaríska hip-hop sveitin Public Enemy tróð upp á tónlistarhátíðinni ATP í Reykjanesbæ í kvöld. 2. júlí 2015 22:56
Sjáðu myndirnar frá ATP: 68 ára gamall Iggy Pop ber að ofan Belle & Sebastian, Iggy Pop og Public Enemy voru á meðal þeirra listamanna sem skemmtu hressum tónleikagestum á Ásbrú á fyrsta kvöldi ATP. 3. júlí 2015 09:57