Innlent

Vill að reynt verði að ná sátt um úrskurð gerðardóms

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir skrifar
Heilbrigðisráðherra vill að gerðardómur noti heimild í lögum til að ræða við samningsaðila áður en úrskurður verður kveðinn upp um miðjan ágúst. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, formaður velferðarnefndar Alþingis, segir heilbrigðisyfirvöld halda niðri í sér andanum og aðhafast ekkert fyrr en úrskurður gerðardóms liggur fyrir í von um að málið leysist þar. Hún saknar þess að ráðherrann gefi afdráttarlausari skilaboð um að það verði að leysa málið.

Velferðarnefnd Alþingis fékk heilbrigðisráðherra, landlækni og forstjóra Landlæknis á fund sinn í dag til að ræða uppsagnir á Landspítalanum og hvort verið sé að undirbúa aðgerðir til að bregðast við þeim.

Vill nýta heimildir í lögum

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra segir gerðardóm hafa ýmsar heimildir í 3. grein verkfallslaganna til að koma á sáttum. Hann segist treysta því að þær verði nýttar. Þá sé að finna tækifæri í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þegar lögin voru sett sem hægt sé að styðjast við.

Hann vill að deilendur verði kallaðir saman áður en úrskurður verður kveðinn upp.

„Ég treysti því að við látum á það reyna að ná sameiginlegri sýn á þá niðurstöðu,“ segir ráðherrann og bætir við að uppsagnirnar séu til stórskaða fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu.

Nánast útilokað mál

Hann sér ekki sömu tækifæri til einkarekstrar í heilbrigðiskerfinu og flokkssystir hans, Sigríður Á. Andersen, viðraði í fréttum í gær.

„Við erum 300 þúsund manna þjóðfélag sem viljum halda uppi mjög fullkominni þjónustu,“ segir hann.  „Þessi viðkvæmasta, erfiðasta, þyngsta þjónusta innan Landspítalans, ég sé ekki að það sé hægt að halda henni uppi með sjálfstæðri verktöku. Ég held að það sé nánast útilokað mál.“

Páll Matthíasson forstjóri Landspítalans segir að ef uppsagnirnar standi eftir að gerðardómur verði kveðinn upp verði gripið til viðeigandi ráðstafanna. Reynt verði að endurskipuleggja starfsemina, ráða í stöður þar sem því verður við komið og haft verði samband við starfsmannaleigur. Þær séu þó aðeins skammtímalausn. „Til að reka þunga og viðamikla starfsemi þarf að hafa öflugt velmenntað starfsfólk sem er í fastri vinnu,“ segir Páll Matthíasson.


Tengdar fréttir

Tækifæri fyrir hjúkrunarfræðinga

Fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkurt gott. Hjúkrunarfræðingar eru óánægðir með kjör sín hjá ríkisspítalanum. Ríkið telur sér ekki fært að hækka launin jafn mikið og hjúkrunarfræðingar krefjast. Hjúkrunarfræðingar virðast ekki vilja að höggvið sé á hnútinn með gerðardómi sem þó myndi takmarka tjón beggja deiluaðila. Þess í stað kjósa sumir þeirra að segja upp störfum. Í þessari erfiðu stöðu felast þó kannski tækifæri fyrir alla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×