Innlent

Heilbrigðisráðherra ætlar að berjast gegn niðurskurði á fjárlögum 2016

Birgir Olgeirsson skrifar
Á fundinn voru boðaðir forstjóri Landspítalans, heilbrigðisráðherra og landlæknir.
Á fundinn voru boðaðir forstjóri Landspítalans, heilbrigðisráðherra og landlæknir. Vísir
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra mun berjast gegn frekari niðurskurði í heilbrigðisþjónustunni. Þetta kom fram á fundi velferðarnefndar í dag vegna uppsagna heilbrigðisstarfsfólks og kjaramála heilbrigðisstétta en 260 hjúkrunarfræðingar hafa sagt upp störfum á Landspítalanum.

Á fundinn voru boðaðir heilbrigðisráðherra, landlæknir og forstjóri Landspítalans. Kristján Þór sagðist vonast til þess að með skipan gerðardóms myndi nást fram sátt milli deiluaðila en það væri hlutverk gerðardóms samkvæmt lögum að ná fram samtali á milli deiluaðila, þau efni sem ekki næst sátt um fari í úrskurð.

Fráfarandi þingmaður lét heyra í sér

Jón Þór Ólafsson, fráfarandi þingmaður Pírata, var mættur á fundinn þar sem hann benti á að árin 2013 og 2014 hefði öryggi sjúklinga verið tryggt. Það væri lögbundin skylda þeirra sem fara með heilbrigðismál að veita fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem unnt er að veita. Nú árið 2015 væri þetta öryggi ekki tryggt og spurði hann því hvort þessi aðilar líta á það sem hlutverk sitt að tryggja öryggi sjúklinga og að veita fullkomnustu heilbrigðisþjónustu hverju sinni.

Kristján Þór sagði það vera rétt hjá Jóni Þór að samkvæmt ákvæði laga eigi að veita fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem unnt er að veita. Hann benti þó á að ráðuneytið þurfi að fara eftir því svigrúmi sem Alþingi skapar með fjárveitingu á hverju ári. Hann sagði rétt að árin 2013 og 2014 hefði öryggi sjúklinga verið tryggt en nú árið 2015 hefði það ekki verið svo vegna þeirra stöðu sem er uppi vegna kjaradeilna.

Sagði ráðherra móta rammann

Jón Þór benti ráðherra á ramminn sem heilbrigðisyfirvöldum sé settur sé unninn af löggjafanum og Kristján Þór vinni að breytingartillögum hverju sinni. Jón Þór segist hafa sett sig í samband við allar heilbrigðisstofnanir á landinu og fengið þær upplýsingar að ramminn sé of þröngur til að geta veitt fullkomnustu heilbrigðisþjónustu hverju sinni.

Kristján Þór svaraði því að hann telji sig vera að sinna sínu lögbundna hlutverki. Þegar voru bornar undir hann fréttir þess efnis að 700 milljóna króna aðhaldskrafa verði gerð á heilbrigðiskerfið svaraði Kristján því að slíka krafa lægi ekki fyrir. Hann sagði vissulega þá stefnu ríkja að almennt væri gerð aðhaldskrafa á ríkisrekstur hverju sinni en á móti væri veitt ákveðið útgjalda svigrúm sem hefur þó jafnan ekki náð að mæta þeirri aðhaldskröfu sem er gerð hverju sinni. Hann sagði að hann myndi berjast gegn niðurskurði í fjárlögum árið 2016.

Nefndarmenn á fundinum í dag.vísir
Ráðherra sammála Valgerði um erlenda starfsmenn

Valgerður Bjarnadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, spurði hvort verið væri að íhuga að ráða hjúkrunarfræðinga frá útlöndum. Hún sagði það vera ákveðna veruleikafirringu því almennt væru lægri laun hér á landi en annars staðar og auk þess dýrara að lifa.

Kristján Þór sagðist vera Valgerði sammála og sagði það enga lausn fyrir 300 þúsund manna þjóðfélag að leita til útlanda eftir heilbrigðisstarfsfólki.

„Við erum á þannig markaði að það er alltaf dýrara að kaupa þannig aðföng en fóstra.“



Verra fyrir pyngju þjóðarinnar

Páll Matthíasson forstjóri Landspítalans sagði vissulega hægt að finna útlent heilbrigðisstarfsfólk en sagði að það yrði verra fyrir pyngju þjóðarinnar.

Páll sagði að ekki væri tímabært að ræða 700 milljóna króna aðhaldskröfu því hún væri ekki komin fram. Hann benti á að skorið hefði verið niður á Landspítalanum frá árinu 2001 fram að árinu 2014. Hann sagði forstöðumenn Landspítalans vita hvað það kostar að framleiða hverja einingu og það sé ódýrara á Íslandi en í nágrannalöndum. Hann sagði skilvirkni á Landspítalanum góða en hann þurfi meira fé.

Hann sagði nauðsynlegt að fjölga starfsmönnum á Landspítalanum. Ef það yrði gert með því að fá starfsfólk úr starfsmannaleigum eða starfsfólk frá útlöndum væri það ekki langtímalausn. Hann sagði nauðsynlegast í stöðunni að samningar náist.

Sér ekki fyrir sér að hægt sé að reka heilbrigðiskerfið með verktöku

Heilbrigðisráðherra var svo spurður út í orð Sigríðar Andersen, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, í gær en hún sér tækifæri í uppsögnum hjúkrunarfræðinga og hvetur þá til að fara í auknum mæli út í einkarekstur. 

Kristján Þór sagðist hafa óljósa mynd í gegnum fjölmiðla af þeirri hugmynd hjúkrunarfræðinga að leigja sig út sjálfir. Hann sagði öllum frjálst að stofna sjálfseignarfélög en sagðist ekki sjá fyrir sér að hægt yrði að reka jafnþunga og lífsnauðsynlega þjónustu og nú er veitt með verktöku. 


Tengdar fréttir

Tækifæri fyrir hjúkrunarfræðinga

Fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkurt gott. Hjúkrunarfræðingar eru óánægðir með kjör sín hjá ríkisspítalanum. Ríkið telur sér ekki fært að hækka launin jafn mikið og hjúkrunarfræðingar krefjast. Hjúkrunarfræðingar virðast ekki vilja að höggvið sé á hnútinn með gerðardómi sem þó myndi takmarka tjón beggja deiluaðila. Þess í stað kjósa sumir þeirra að segja upp störfum. Í þessari erfiðu stöðu felast þó kannski tækifæri fyrir alla.

Var sjúkraliði en lærði hjúkrun og uppskar launalækkun

Ungar konur undirbúa stofnun starfsmannaleigu fyrir hjúkrunarfræðinga til að bregðast við yfirlýsingum stjórnenda Landsspítalans um að leitað verði eftir erlendum starfskröftum vegna uppsagna hjúkrunarfræðing




Fleiri fréttir

Sjá meira


×