Von á skúrum og svölu veðri fram yfir helgi Birgir Olgeirsson skrifar 21. júlí 2015 10:37 Það má búast við skúrum fram yfir helgi víða um land. Vísir/Arnþór
Það er fátt um fína drætti inni á vef Veðurstofu Íslands þegar horft er nokkra daga fram í tímann. Besta veðrið næstu daga verður annað kvöld á höfuðborgarsvæðinu, nánar tiltekið um klukkan 21 á þriðjudagskvöldi þegar spáir 13 stiga hita og heiðskíru veðri. Eftir það má búast við svölu veðri og skúrum um land allt, miðað við árstíma. Í dag má búast við norðan- og norðaustanátt 5 – 13 metrum á sekúndu, en heldur hægari norðaustan til. Skýjað og rigning með köflum sunnan- og suðaustanlands en víða bjart vestan til. Úrkomulítið í kvöld en fer að rigna norðan og austan á morgun, annars bjart með köflum. Hiti víða 5 til 16 stig, hlýjast fyrir sunnan. Á fimmtudag er búist við norðlægri eða breytilegri átt, 3 – 10 metrum á sekúndu. Bjartviðri um landið sunnan og vestanvert og líkur á síðdegisskúrum en skýjað og rigning með köflum annars staðar. Hiti 5 til 15 stig, svalast austan til. Á föstudag, laugardag, sunnudag og mánudag: Hæg breytileg átt, skýjað með köflum og skúrir um allt land, síst þó norðvestan til. Hiti 6 – 14 stig, hlýjast syðst. Þegar litið er á langtímaspá norsku veðurstofunnar þá verða Íslendingar einfaldlega að vona að „sumarið“ komi í ágúst. Þess ber þó að geta að langtímaspár eru ekki þær áreiðanlegustu.
Veður Mest lesið „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Innlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Fleiri fréttir Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Sjálfkjörið á Vopnafirði Logi tekur undir mótmæli gegn þátttöku Rússa á Feneyjatvíæringnum Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Sjá meira