Allt lagt í nýja auglýsingu sem var ár í vinnslu Stefán Árni Pálsson skrifar 21. ágúst 2015 13:00 Auglýsingin þykir mjög vel heppnuð. „
Þetta var fyrsti textinn sem ég samdi og gott ef þetta var ekki fyrsta laglínan sem ég sönglaði líka,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson um lagið Stanslaust stuð sem hann samdi ásamt þáverandi HAM rokkurunum, Golden Globe verðlaunahafanum Jóhanni Jóhannssyni og Sigurjóni Kjartanssyni árið 1993. Lagið má nú heyra í glænýrri auglýsingu Orkusölunnar, en auglýsingin var tæpt ár í vinnslu sökum þess að íslenska veðrið var ekki að gera gott mót og mikil eftirvinnsla tók svo við eftir að tökum lauk. Auglýsingin er úr smiðju Brandenburg og það var Guðjón Jónsson sem leikstýrði henni í samstarfi við Sagafilm. Lagið Stanslaust stuð var samið fyrir fyrstu sólóplötu Páls Óskars sem hét einfaldlega Stuð. „Þarna vissi ég mæta vel að ég vildi verða Donna Summer þegar ég yrði stór en mig vantaði Giorgio Moroder inn í jöfnuna. Hann fann ég í þeim Jóhanni og Sigurjóni þegar ég hitti þá í New York og úr varð meðal annars þetta lag sem ég enn þann dag í dag kemst ekki undan að syngja þegar ég kem fram,“ segir Páll Óskar.
Golden Globes Mest lesið Svala slær sér upp Lífið Allt í einu orðin mamman sem missti barnið sitt Lífið Biðu hjálpar í tíu klukkustundir í flugvélabraki Lífið Erfitt að geta aldrei hlakkað til neins Lífið Ætla að halda Lífskviðuna þrátt fyrir andlát Ásgeirs í nótt Menning Kemur út úr skápnum tveimur árum eftir andlát sitt Lífið Enginn þreyir þorrann eins og Áslaug Arna Lífið Ómerkilegir þættir um merkilega konu Gagnrýni Guinness-æðið sem gert hefur íslenska djammara að þjófum Lífið Svona var umhorfs í Reykjavík á áttunda áratugnum Lífið Fleiri fréttir Ný mynd um Jackson í uppnámi vegna dómsáttar frá 1993 „Það hafa fallið mörg tár hérna baksviðs í dag“ Víbradorar á víðavangi og nærbuxnalausar konur Myndaveisla: Fjölmennt í níræðisafmæli skákgoðsagnar Ekki ætlunin að nýja merkið komi í stað fálkans Áhrifamesti Íslendingur skáksögunnar níræður Svala slær sér upp Svona var umhorfs í Reykjavík á áttunda áratugnum Erfitt að geta aldrei hlakkað til neins Krakkatían: Páskar, dýravinir og Star Wars Biðu hjálpar í tíu klukkustundir í flugvélabraki Enginn þreyir þorrann eins og Áslaug Arna Bellingham kominn með bandaríska kærustu Kemur út úr skápnum tveimur árum eftir andlát sitt Sjónvarpsbarn komið í heiminn Guinness-æðið sem gert hefur íslenska djammara að þjófum Fréttatía vikunnar: Hótelbruni, Trump og YouTube Allt í einu orðin mamman sem missti barnið sitt Stærsta þorrablót landsins Fann ástina og setur íbúðina á sölu Fallegustu bækur í heimi eru í Garðabæ Brilljant hugmyndir fyrir bóndadaginn Þetta heita „glöðustu hundar“ bræðranna Sveitapiltur úr Tungunum stýrir gullnámu á slóðum Eiríks rauða Bleikur draumur í Hafnarfirði Konurnar í blauta hádegismatnum kröfuharðastar „Hann er það reiður að hann skaðar sjálfan sig“ Emilia Pérez með met margar tilnefningar til Óskars Snerting ekki tilnefnd til Óskars Í beinni: Verður Snerting tilnefnd til Óskars? Sjá meira