Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Magnús Jochum Pálsson skrifar 27. október 2026 11:10 Noah Wyle heldur áfram að gera það gott þessi misserin, nú bætir hann nafnbótinni Kynþokkafyllsti maður í heimi við verðlaunasafn sitt. Vísir/EPA Bandaríska tímaritið People hefur krýnt leikarann Noah Wyle sem kynþokkafyllsta mann í heimi. Leikarinn sló fyrst í gegn sem Dr. John Carter í læknaþáttunum ER og hefur gengið í gegnum endurnýjun lífdaga í læknaþáttunum The Pitt á HBO MAX.
People greindi frá valinu fyrr í morgun, Wyle prýðir forsíðu þess í dag og er rætt við leikarann í löngu viðtali í tímaritinu. Hann sagðist ekki hafa trúað eigin eyrum þegar hann fékk tíðindin. „Mér fannst þetta hljóma eins og hrekkur - ekki í milljón ár myndi ég trúa því að ég hlyti þennan heiður,“ sagði Wyle um tíðindin. Áhorfendur kynntust Wyle fyrst almennilega í læknaþáttunum ER sem hófu göngu sína á NBC árið 1994 og entust til 2009. Wyle var hluti af stjörnum prýddum leikhópi sem innihélt meðal annars George Clooney, Anthony Edwards, Sherry Stringfield og Julianna Margulies. Noah Wyle fer með aðalhlutverk í The Pitt og var hann tilnefndur sem besti aðaleikkari í dramaþáttum.AP Wyle var margsinnis tilnefndur til Emmy- og Golden Globe-verðlauna fyrir leik sinn í þáttunum en hafði ekki erindi sem erfiði. Hann sneri aftur á spítalann í The Pitt sem hófu göngu sína á HBO árið 2025 og hefur hann þegar hlotið bæði Emmy- og Golden Globe-verðlaun fyrir leik sinn. George Clooney grínaðist með það fyrr á árinu á AARP-verðlaunahátíðinni fyrir kvikmyndir handa fullorðnum (e. AARP Movies for Grownups Awards) að samtökin ættu að gefa út tímarit tileinkað „kynþokkafyllsta manni sem væri enn á lífi“ og að hann myndi tilnefna Wyle. Sá hlær best sem síðast hlær og hefur Wyle nú hlotið nafnbótina kynþokkafyllsti maður í heimi (sem George Clooney hefur reyndar hreppt í tvígang). Nafnbótin hefur verið veitt 41 sinni frá árinu 1985 þegar Mel Gibson var valinn. Síðastur til að hljóta verðlaunin var Jonathan Bailey sem var fyrsti opinberlega samkynhneigði maðurinn til að hljóta þau. Wyle ræddi í dag við Amy Poehler um ferilinn og líf sitt:
Hollywood Bandaríkin Bíó og sjónvarp Mest lesið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hvað veistu um… pitsur? Lífið Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Hætta við að hætta við að hætta við Tónlist Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Lífið Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síðdegis? Áskorun Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Lífið Fleiri fréttir Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Sjá meira