Náði Bieber fyrir utan klósettið á Olísstöðinni á Selfossi Jakob Bjarnar skrifar 21. september 2015 14:58 Atli Már og Justin Bieber, en Atli náði bráð sinni fyrir utan klósettið á Olísstöðinni á Selfossi: Justin Bieber afskaplega rólegur og hlédrægur drengur. Þormar Vignir
Justin Bieber afskaplega rólegur og hlédrægur drengur. „Alla veganna var hann þannig þegar hann talaði við mig,“ segir Atli Már Gylfason blaðamaður DV, í einkaviðtali við Vísi um einkaviðtal sem hann tók við Justin Bieber, sem staddur er hér á landi eins og þeir sem fylgjast með vita. Vísir veitir hér einstæða innsýn í líf íslenska slúður- og æsifréttamannsins. Og það kemur á óvart þetta sem Atli Már segir næst: „Hann var á þeim nótunum að hann vildi helst ekkert að heimurinn vissi að hann væri á Íslandi.“Ha? Samt veitti hann viðtal? „Klárlega. Hann var tilbúinn að spjalla við mig.“Hinn íslenski papparazzi Atli Már Gylfason blaðamaður á DV skilgreinir sjálfan sig sem tabloidblaðamann og papparazzi. Íslendingar hafa sýnt sig í að vera í nöp við slíka blaðamennsku og oft hafa risið upp hrein og klár mótmæli vegna frétta af frægum á ferð á Íslandi. „Látið þau í friði!“ En, Atli Már gefur lítið fyrir þetta viðhorf, að Íslendingum sé illa við þetta. Helst að hann telji þetta fremur svona hræsnisfulla afstöðu: „Jájá, en það vilja allir sjá myndina. Justin Bieber á Íslandi. Fréttin er hálfsögð nema með fylgi mynd.“ Atli Már er af Suðurnesjum, hefur verið búsettur í nálægð við Leifsstöð og hefur hann oft komist í tæri við frægt fólk sem þar hefur lent. „Ég var nú reyndar staddur á skrifstofunni í Reykjavík þegar ég fékk þetta mission. Og elti bílalest en þeir voru á tveimur stórum svörtum Merzedes Bens, hópbifreiðum.Náði honum fyrir utan klósettið Það var svo á Selfossi þar sem Atli Már náði að hremma bráð sína. „Já, ég hitti hann þar og ræddi við hann. Við ætlum að birta hluta úr spjalli okkar á vefnum í kvöld og svo viðtal í blaðinu á morgun. En, ég sem sagt, rakst á hann á Selfossi. Elti hann á Olísstöðina þar sem hann stökk inn til að fara á salernið.“Og greipstu hann glóðvolgan fyrir framan klósettið? „Já, eða neinei, ég fór rólegur út úr bílnum og fékk mér sígarettu fyrir utan. Og beið eftir því að hann kæmi út og spjallaði þá við hann. Stelpurnar sem voru í afgreiðslunni á Olís voru að reyna að reyna að átta sig á því að Justin bieber stæði þarna fyrir framan þær. Gaman að fylgjast með svipnum á þeim þegar hann labbaði fyrir framan þær og inn á klósett. Þær hafa seint búist við því.“Varð ekkert „starstruck“ Atli Már er vanur því að hitta á fræga menn. Hvað var það sem kom honum helst á óvart? Atla vefst tunga um tönn. „Ég, átta mig ekki á því. Ætli það sé ekki bara þetta að ég furða mig mest á sjálfum mér að hafa ekki orðið meira starstruck. ég var ekki nógu starströkk það kom mér einna helst á óvart. Því það var ung stúlka með mér í för sem fékk að taka mynd af sér með Justin Bieber og það var í raun eins og það væri það eina sem hún vildi gera í þessu lífi. Sko, það eru fleiri þarna úti fyrir mitt leyti sem eru merkilegri en hann er án efa eins stærsta poppstjarnan í heiminum, það er ekkert hægt að orða það öðru vísi.“Var með illilega lífverði Atli Már segir að hópurinn hafi talið um 12 manns. Og allir að eltast við Bieber? „Já, en, ég næ þeim alltaf. Lítið breyst.“Myndi þetta teljast sá frægasti sem þú hefur hitt? „Já, hann og Clint Eastwood. Þeir voru líka þeir einu sem létu lífverðina ekki ráðast á mig. Hann lét ekki einhverja rugby-útlítandi gaura ráðast á mig, hann lét það alveg eiga sig. Jájá, hann var með lífverði með sér.“ Atli Már hefur, sem slúðurfréttamaður og papparazzi, lent í ýmsum hremmingum í gegnum tíðina, í viðskiptum sínum við hinar alþjóðlegu stjörnur. Þannig réðst tónlistarkonan Pink á Atla Má þegar hann sat fyrir henni í Bláa lóninu og þá komst hann í kast við lífverði Lou Reed sem þótti hann helst til nærgöngull.
Justin Bieber á Íslandi Tengdar fréttir Bieber pantaði sér Kalkúnsbringubát: Starfsmaðurinn enn í sjokki Popparinn Justin Bieber henti sér á Subway í Reykjanesbæ í morgun en þetta kemur fram á Facebook-síðu Subway á Íslandi. 21. september 2015 13:32 Justin Bieber á Íslandi: Kom við á Lemon í Reykjanesbæ Kanadíski tónlistamaðurinn Justin Bieber lenti í dag á Keflavíkurvelli en ekki er ljóst hvort hann sé í fríi eða einungis að millilenda. 21. september 2015 12:01 „Látið þau í friði!“ Fjöldi fólks biðlar til fjölmiðla og ljósmyndara að láta hjónin Beyoncé og Jay Z í friði. 3. desember 2014 11:05 Bieber notaði almenningssalerni á Selfossi: Stefnir á gullna hringinn Kanadíski tónlistarmaðurinn Justin Bieber er mættur á Selfoss en mynd náðist af honum fyrir utan Olís þar í bæ. 21. september 2015 13:49 Mest lesið Lifir eins og kóngur á 150-200 þúsund krónum á mánuði Lífið Greindist með skyrbjúg eftir notkun megrunarlyfs Lífið Herra Hnetusmjör og Sara selja lúxusíbúð innan við ári eftir kaupin Lífið Þakkar aðal sykurpabbanum fyrir allt Lífið Gellurnar fjölmenntu á gugguvaktina Lífið Fólk geti gengið frá kaupsamningum sjálft Lífið „Prinsessur eru líka sterkar og fyndnar“ Lífið Madonna og Elton John grafa stríðsöxina Lífið Slæm hárgreiðsla Steinda varð enn verri Lífið Seldu draumahúsið og skella sér í Asíuævintýri með krakkana Lífið Fleiri fréttir Guðni Th. orðinn afi Fólk geti gengið frá kaupsamningum sjálft Lifir eins og kóngur á 150-200 þúsund krónum á mánuði Þakkar aðal sykurpabbanum fyrir allt Gellurnar fjölmenntu á gugguvaktina Greindist með skyrbjúg eftir notkun megrunarlyfs Slæm hárgreiðsla Steinda varð enn verri Herra Hnetusmjör og Sara selja lúxusíbúð innan við ári eftir kaupin „Prinsessur eru líka sterkar og fyndnar“ Madonna og Elton John grafa stríðsöxina 80 syngjandi karlar syngja hér heima og í Gimli í Kanada „Fólkið hefur gleymst og þetta er ekki manneskjulegt“ Kveðju kastað á Megas í tilefni dagsins Bleik og ævintýraleg miðbæjarperla Með skottið fullt af próteini Trommari Blondie er fallinn frá Stjörnulífið: Skvísuafmæli, Hönnunarmars og hækkandi sól Tónhylur sameinar reynslubolta og þá efnilegustu Geðbrigði er sigurvegari Músiktilrauna Fjölskylda Bryndísar Klöru þakklát Seldu draumahúsið og skella sér í Asíuævintýri með krakkana Laufey sendir lekamönnum tóninn Mikilvægt að á Íslandi sé framleitt úr íslenskri ull „Þessi krakki mun aldrei hlaupa á eftir bolta“ Sjóræningjar réðust á Íslendinga Krakkatían: Blæja, birnir og sveppahús „Ef þú ræðst svona aftur á mig þá stíg ég á fótinn þinn“ Átta ára sæmd heiðursmerki fyrir að bjarga lífi móður sinnar Tæknidagur fjölskyldunnar er í Neskaupstað í dag Hanna Katrín heiðraði Eyjólf í Epal Sjá meira
Bieber pantaði sér Kalkúnsbringubát: Starfsmaðurinn enn í sjokki Popparinn Justin Bieber henti sér á Subway í Reykjanesbæ í morgun en þetta kemur fram á Facebook-síðu Subway á Íslandi. 21. september 2015 13:32
Justin Bieber á Íslandi: Kom við á Lemon í Reykjanesbæ Kanadíski tónlistamaðurinn Justin Bieber lenti í dag á Keflavíkurvelli en ekki er ljóst hvort hann sé í fríi eða einungis að millilenda. 21. september 2015 12:01
„Látið þau í friði!“ Fjöldi fólks biðlar til fjölmiðla og ljósmyndara að láta hjónin Beyoncé og Jay Z í friði. 3. desember 2014 11:05
Bieber notaði almenningssalerni á Selfossi: Stefnir á gullna hringinn Kanadíski tónlistarmaðurinn Justin Bieber er mættur á Selfoss en mynd náðist af honum fyrir utan Olís þar í bæ. 21. september 2015 13:49