Fótbolti

Íslendingasveitin í Viking hafði betur gegn Stabæk

Stefán Árni Pálsson skrifar
Indriði Sigurðsson hefur verið fyrirliði Viking síðan 2011.
Indriði Sigurðsson hefur verið fyrirliði Viking síðan 2011. mynd/vikingfk.no
Viking hafði betur gegn Stabæk í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld og vann liðið 2-1 sigur.

Leikurinn fór fram á heimavelli Viking en Indriði Sigurðsson og Jón Daði Böðvarsson voru báðir í byrjunarliðið Viking í leiknum. Steinþór Freyr Þorsteinsson og Björn Daníel Sverrisson sátu á bekknum. Þeir komu báðir við sögu í leiknum.

Viking er í 5. sæti deildarinnar með 50 stig en Stabæk í því þriðja með 53 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×