Morðinginn í Trollhättan var kynþáttahatari Gunnar Reynir Valþórsson og Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifa 23. október 2015 07:20 Á myndinni, sem nemandi við skólann tók í gær, sést morðinginn með nemendum við skólann rétt áður en hann gerði árásina. Vísir/AFP
Maðurinn sem réðst inn í barnaskóla í Trollhättan í Svíþjóð í gær vopnaður sverði er talinn hafa verið drifinn áfram af kynþáttahatri. Sænskir miðlar fjalla ítarlega um málið. Hann myrti tvo og særði tvo aðra sem nú berjast fyrir lífi sínu á sjúkrahúsi. Lögreglustjórinn Niclas Hallgren segir að við leit á heimili mannsins, og miðað við það hvernig hann hagaði sér á meðan á árásinni stóð bendi allt til þess að maðurinn, sem lést af völdum skotsára lögreglu í gær, hafi verið kynþáttahatari. Hann á að hafa haft mikinn áhuga á Hitler, hægri öfgahreyfingum og nasisma. Það hefur þó ekki verið staðfest að maðurinn hafi nokkra tengingu við hægri öfgaflokka í Svíþjóð. Fimmtán ára drengur sem særðist í árásinni í gær vaknaði í morgun og er ástand hans stöðugt. Hinn sem slasaðist var fullorðinn maður en ástand hans er alvarlegra. Maðurinn, sem var tuttugu og eins árs gamall, stillti sér upp á myndum með nemendum skólans vopnaður sverðinu og með grímu og hjálm á höfði, áður en hann lét til skarar skríða. Nemendurnir héldu að hann væri í grímubúningi. Nafn mannsins hefur ekki verið gert opinbert en hann mun hafa verið búsettur í Trollhättan. Á sunnudag klukkan tvö hyggjast íbúar Trollhättan halda þögn í eina mínútu fyrir fórnarlömb árásármannsins. Ekki er vitað hvers vegna árásarmaðurinn kaus að ráðast inn í þennan tiltekna skóla, Kronan. Sænskir miðlar segja líklegt að það sé vegna þess að hann er á svæði þar sem búa margir innflytjendur.
Tengdar fréttir Árás á skóla í Svíþjóð: „Fyrst héldum við að þetta væri brandari“ Árásarmaðurinn er á þrítugsaldri. 22. október 2015 11:25 Árás í Svíþjóð: Kennari og ellefu ára drengur látnir Árásarmaðurinn kom í skólann með grímu og sverð. Öryggismál í skólanum voru gagnrýnd fyrir árásina. 22. október 2015 09:59 Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Fleiri fréttir Lög brotin við framleiðslu „túrbókjúklings“ í Danmörku Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Sjá meira
Árás á skóla í Svíþjóð: „Fyrst héldum við að þetta væri brandari“ Árásarmaðurinn er á þrítugsaldri. 22. október 2015 11:25
Árás í Svíþjóð: Kennari og ellefu ára drengur látnir Árásarmaðurinn kom í skólann með grímu og sverð. Öryggismál í skólanum voru gagnrýnd fyrir árásina. 22. október 2015 09:59