Bpro dreifingaraðili ársins hjá LabelM Ritstjórn skrifar 20. október 2015 13:45
Íslenska hárvöruheildsalan Bpro, var valin LabelM dreifingaraðili ársins á stórri sýningu LabelM og Toni & Guy á dögunum, en sýningin var hluti af London Fashion Week. Í fyrra fengu þau verðlaun fyrir almannatengsl og markaðsmál, og lentu í öðru sæti sem dreifingarðaili ársins. Það var því ekkert annað í stöðunni en að spýta í lófana og hreppa stóru verðlaunin í ár, sem síðan tókst. Fyrir ekki stærri dreifingaraðilia en þetta, er þetta mikil viðurkenning en í sama flokki voru stór lönd á borð við Ítalíu og Bretland.Baldur tekur við verðlaununum.„Þetta væri ekki hægt nema með þeim gríðarlega stuðningi sem við fáum frá okkar tryggu viðskiptavinum sem halda lífinu og fjörinu í okkur gangandi allt árið um kring. Og ekki má gleyma okkar kröftuga og ástríðurfulla starfshópi sem leggur sig allan fram við að veita faglegustu þjónustu sem völ er á. Þessi verðlaun hafa gefið okkur gríðarlega viðurkenningu og kraft til að halda áfram að byggja upp okkar fag á íslenskum markaði,“ segir Baldur Rafn Gylfason, eigandi Bpro.
Glamour Fegurð Mest lesið Gleymdu svarta litnum, hvítur er að taka yfir Glamour Kraftgallinn er kominn aftur Glamour Inga leiðir byltingu í tískuheiminum Glamour Hadid og Hutton saman á tískupallinum Glamour Flip flop skór með hæl Glamour Marc Jacobs lokaði tískuvikunni í New York með hvelli Glamour Er Mondler í alvöru par? Glamour Langar þig í Glamour x Ellingsen hettupeysu? Glamour Celine Dion er drottning tískuvikunnar í ár Glamour Bestu tískuaugnablik ársins 2016 Glamour