Körfubolti

James með 29 stig gegn gömlu félögunum | Myndbönd

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gömlu liðsfélagarnir LeBron James og Dwayne Wade heilsast fyrir leik Cleveland og Miami.
Gömlu liðsfélagarnir LeBron James og Dwayne Wade heilsast fyrir leik Cleveland og Miami. vísir/getty
Tólf leikir fóru fram í NBA-deildinni vestanhafs í nótt.

LeBron James skoraði 29 stig þegar Cleveland Cavaliers vann 10 stiga sigur, 102-92, á hans gömlu félögum í Miami Heat.

James hitti úr 13 af 19 skotum sínum í leiknum en Cleveland hefur unnið tvo af fyrstu þremur leikjum sínum í deildinni. Kevin Love átti einnig góðan leik í nótt og skoraði 24 stig og tók 14 fráköst. Dwayne Wade var atkvæðamestur hjá Miami með 25 stig.

Oklahoma City Thunder vann þriggja stiga sigur, 139-136, á Orlando Magic í tvíframlengdum leik í Orlando.

Heimamenn hittu frábærlega í fyrri hálfleik og leiddu að honum loknum, 67-53. OKC vaknaði til lífsins í seinni hálfleiks og Russell Westbrook tryggði liðinu framlengingu með ótrúlegri þriggja stiga körfu rétt áður en leiktíminn rann út.

Westbrook kom OKC þremur stigum yfir, 126-123, þegar rúmar sjö sekúndur voru eftir af fyrri framlengingunni en þristur frá Victor Oladipo þýddi að grípa þurfti til annarrar framlengingar þar sem gestirnir reyndust svo sterkari.

Westbrook fór á kostum liði Oklahoma; skoraði 48 stig, tók 11 fráköst og gaf átta stoðsendingar. Kevin Durant var litlu síðri með 43 stig og 12 fráköst. Tobias Harris skoraði mest fyrir Orlando, eða 30 stig, og þá var Oladipo með þrennu; 21 stig, 13 fráköst og 10 stoðsendingar.

Meistarar Golden State Warriors unnu öruggan sigur, 112-92, á Houston Rockets á útivelli.

Stephen Curry skoraði 25 stig fyrir Golden State sem hefur unnið báða leiki sína til þessa. Mareese Speights skoraði 14 stig af bekknum en alls fengu meistararnir 48 stig frá varamönnum sínum í leiknum.

Montrelz Harrell skoraði 17 stig fyrir Houston en James Harden, þeirra besti maður, náði sér ekki á strik. Harden endaði með 16 stig, sjö fráköst og fimm stoðsendingar en hann hitti aðeins úr fjórum af 18 skotum sínum utan af velli.

Úrslitin í nótt:

Miami 92-102 Cleveland

Orlando 136-139 Oklahoma

Houston 92-112 Golden State

Sacramento 132-114 LA Lakers

Phoenix 110-92 Portland

Denver 78-95 Minnesota

San Antonio 102-75 Brooklyn

Milwaukee 113-118 Washington

Atlanta 97-94 Charlotte

Detroit 98-94 Chicago

Boston 103-113 Toronto

Philadelphia 71-99 Utah

Ævintýraleg lokamínúta í leik Orlando og Oklahoma James og Wade áttust við í nótt Marcus Smart með ótrúlegan þrist
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×