Körfubolti

Rose kláraði Oklahoma

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rose reynir hér að stöðva Russell Westbrook í nótt.
Rose reynir hér að stöðva Russell Westbrook í nótt. vísir/getty
Derrick Rose sýndi gamla góða takta er Chicago Bulls vann góðan sigur á Oklahoma Thunder í NBA-deildinni í nótt.

Rose skoraði 29 stig í leiknum. Chicago var búið að kasta frá sér góðu forskoti í fjórða leikhluta en þá steig Rose upp undir lokin með tíu stigum.

Jimmy Butler einnig sterkur í liði Bulls með 26 stig.

Russell Westbrook skoraði 20 stig og gaf 10 stoðsendingar fyrir Oklahoma. Serge Ibaka skoraði 17 stig.

Úrslit:

Chicago-Oklahoma  104-98

Minnesota-Miami  84-96

Dallas-Charlotte  94-108

Denver-Utah  84-96

Portland-Memphis  115-96

Staðan í NBA-deildinni.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×