Körfubolti

Þessi lið verða í pottinum á morgun

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Logi Gunnarsson og félagar í Njarðvík komust áfram í bikarnum í kvöld.
Logi Gunnarsson og félagar í Njarðvík komust áfram í bikarnum í kvöld. Vísir/Stefán
32 liða úrslitum Poweradebikars karla í fótbolta fóru fram um helgina og lauk í kvöld með þremur leikjum þar sem Njarðvík, KR og Haukar voru þrjú síðustu liðin til að tryggja sér sæti í sextán liða úrslitum keppninnar.

Fjögur Domino´s deildarlið féllu út úr 32 liða úrslitnum og öll á móti öðrum liðum í Domino´s deildinni en það voru ÍR, FSu, Tindastóll og Snæfell.

Átta Domino´s deildarlið verða því í pottinum þegar dregið verið í sextán liða úrslitin hjá KKÍ á morgun en þá verður einnig dregið í sextán liða úrslitin hjá konunum.

Liðin í 16 liða úrslitum Poweradebikars karla:

Lið úr Domino´s deild karla: (8)

Þór Þorlákshöfn

Keflavík

Stjarnan

Grindavík

Höttur

Haukar

KR

Njarðvík

Lið úr 1. deild karla (6)

Hamar

Valur

Skallagrímur

Reynir Sandgerði

Breiðablik

Ármann

B-lið (2)

Njarðvík b

Haukar b


Tengdar fréttir

Lauflétt hjá Haukum í Hólminum

Haukar tryggðu sér sæti í 16 liða úrslitum Poweradebikars karla í körfubolta eftir öruggan 44 stiga sigur á Snæfelli í Stykkishólmi í kvöld, 89-45.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×