Körfubolti

Sjáið LeBron James í hlutverki Prince | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Leikmenn Cleveland Cavaliers héldu upp á hrekkjavökuna um helgina og besti leikamaður liðsins LeBron James var þar engin undantekning.

LeBron James og liðsfélagar hans í Cleveland Cavaliers töpuðu fyrsta leik tímabilsins á móti Chicago Bulls en tókst að svara því með að vinna næstu tvo.

Liðið fékk síðan frí um hrekkjavökuhelgina og það var því tími til að safna mönnum saman í skemmtilegt grímupartý.

Gervi LeBron James var metnaðarfullt því hann mætti sem tónlistarmaðurinn Prince og tók Purple Rain lagið fyrir framan liðsfélaga sína.

Mo Willams, leikmaður Cleveland Cavaliers var með myndavélina á lofti og setti fullt af myndum inn á Instagram-síðu sína eins og sjá má hér fyrir neðan.

Þar má líka sjá myndband hér fyrir ofan af tilþrifum LeBron James í hlutverki Prince.

Can u guess who is who?

A photo posted by Mo Williams (@mogotti25) on

A photo posted by Mo Williams (@mogotti25) on

A photo posted by Mo Williams (@mogotti25) on

A photo posted by Mo Williams (@mogotti25) on

A photo posted by Mo Williams (@mogotti25) on

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×