Körfubolti

Westbrook með 43 stig í fjarveru Durants | Myndbönd

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Russell Westbrook var magnaður í nótt.
Russell Westbrook var magnaður í nótt. vísir/getty
Russell Westbrook fór hamförum gegn New Orleans Pelicans í NBA-deildinni í körfubolta í nótt, en hann skoraði 43 stig, tók níu fráköst og gaf átta stoðsendingar í 110-103 sigri sinna manna.

Rétt eins og á síðasta tímabili er hann að taka völdin í sínar hendur í fjarveru Kevin Durants, en ofurstjarna Oklahoma-liðsins er meidd þessa dagana.

New Orleans Pelicans heldur áfram ömurlegri byrjun sinni á tímabilinu, en þetta skemmtilega lið sem spáð var góðu gengi hefur aðeins unnið einn leik af tólf á þessu tímabili og tapað öllum sjö útileikjum sínum.

Pelíkanarnir eru að spila án Anthony Davis sem er frá vegna axlarmeiðsla en í fjarveru hans skoraði Ryan Anderson 30 stig í nótt og tók sjö fráköst.

Westbrook fer á kostum:


James Harden átti svipaðan leik og Westbrook fyrir Houston Rockets sem vann fimm stiga útisigur í framlengingu gegn Portland, 108-103.

Harden skoraði 45 stig, tók ellefu fráköst og gaf fimm stoðsendingar. Hann tók nóg af skotum og hitti aðeins úr fjórum af fimmtán skotum sínum fyrir utan þriggja stiga línuna.

Damian Lillard var stigahæstur heimamanna í porland með 23 stig, en Portland-liðið er með fjóra sigra og níu töp en Houston fimm sigra og sjö töp.

Enginn getur stöðvað Harden:


San Antonio Spurs-vélin heldur áfram að malla en liðið vann fimmta heimasigurinn í röð í nótt og níunda sigurinn í heildina í fyrstu ellefu leikjum tímabilsins þegar það lagði Denver Nuggets að velli, 109-98.

Franski herforinginn Tony Parker var stigahæstur heimamanna með 25 stig en Kawhi Leonard bætti við 20 stigum og átta fráköstum. Nikola Jokic kom sterkur inn af bekknum hjá Portland og skoraði 23 stig og tók 12 fráköst.

Úrslit næturinnar:

Charlotte Hornets - Brooklyn Nets 116-111

Orlando Magic - Minnesota Timberwolves 104-101

Philadelphia 76ers - Indiana Pacers 85-112

Boston Celtics - Dallas Mavericks 102-106

Atlanta Hawks - Sacramento Kings 103-97

Houston Rockets - Portland Trail Blazers 108-103

OKC Thunder - New Orleans Pelicans 110-103

San Antonio Spurs - Denver Nuggets 109-98

Utah Jazz - Toronto Raptors 93-89

Phoenix Suns - Chicago Bulls 97-103

Flottustu tilþrif næturinnar:
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×