Handbolti

Fínn sigur hjá Berlin

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Bjarki Már Elísson.
Bjarki Már Elísson.
Það var misjafnt gengi Íslendingaliðanna í þýska handboltanum í kvöld.

Aðeins lið Erlings Richardssonar, Füchse Berlin, náði að vinna sinn leik. Liðið lagði Lübbecke, 34-31, á heimavelli sínum. Bjarki Már Elísson skoraði sex mörk fyrir Berlin í leiknum.

Flensburg valtaði yfir Hannover-Burgdorf, 37-21. Rúnar Kárason skoraði þrjú mörk fyrir Hannover.

Gummersbach lagði svo lið Geirs Sveinssonar, Magdeburg, 30-25.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×