Handbolti

Jicha frá í nokkra mánuði

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jicha í leik með Barcelona gegn KIF Kolding.
Jicha í leik með Barcelona gegn KIF Kolding. vísirepa
Evrópumeistarar Barcelona urðu fyrir áfalli um helgina er tékkneska skyttan, Filip Jicha, meiddist illa.

Jicha meiddist á nára og þarf að fara í aðgerð. Barcelona segir ekki ljóst hversu lengi Jicha verði frá en það gæti verið allt upp í fjóra mánuði.

Jicha kom til félagsins frá Kiel í lok síðasta sumars og var ætlað að fylla skarð Nikola Karabatic hjá félaginu en Frakkinn fór til PSG.

Jicha var samningsbundinn Kiel en grátbað félagið um að sleppa sér þar sem hann væri illa staddur fjárhagslega. Á endanum varð honum að ósk sinni.

Túnisbúinn Wael Jallouz fær nú fleiri tækifæri en áður og hann gerði það í 31-30 sigrinum gegn Vardar um helgina er hann skoraði 12 mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×