Körfubolti

Körfuboltakvöld: Framlenging

Í lok hvers þáttar af Körfuboltakvöldi er gripið til framlengingar þar sem fimm umræðuefni eru rædd á fimm mínútum.

Í fyrrakvöld voru umræðuefnin Kanaskiptin hjá FSu, hver sé bestur í deildinni hingað til, ætti Margrét Kara að vera í landsliðshópnum, á Þór Þorlákshöfn möguleika á tilti og hvort að Snæfell  sé búið að útiloka fall?

Þeir Kjartan Atli Kjartansson, Hermann Hauksson og Fannar Ólafsson fóru vel yfir málin í gær og niðurstöður þeirra má sjá í sjónvarpsglugganum hér að ofan.

Körfuboltakvöld er á dagskrá eftir hverja umferð í Dominos-deild karla á Stöð 2 Sport.


Tengdar fréttir

Körfuboltakvöld: Fannar skammar

Einn dagskráliður í Körfuboltakvöldi á Stöð 2 Sport hefur vakið mikla kátínu flestra körfuboltaunnenda og liðurinn var að sjálfsögðu í Körfuboltakvöldi sem var á dagskrá í gærkvöldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×