Handbolti

Mikilvægur sigur Magdeburg

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Geir er á sínu öðru tímabili sem þjálfari Magdeburg.
Geir er á sínu öðru tímabili sem þjálfari Magdeburg. vísir/getty
Geir Sveinsson og lærisveinar hans í Magdeburg unnu tveggja marka sigur, 30-28, á Hannover-Burgdorf í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Austurríski hornamaðurinn Robert Weber var einu sinni sem oftar markahæstur í liði Magdeburg með átta mörk en þeir Yves Grafenhorst og Jacob Bagersted komu næstir með sex mörk hvor.

Rúnar Kárason skoraði tvö mörk úr fjórum skotum í liði Hannover. Sven-Sören Christopherson var markahæstur Hannover-manna með 10 mörk.

Með sigrinum komst Magdeburg upp í 9. sæti deildarinnar en liðið er með 16 stig eftir 15 leiki. Hannover, sem tapaði sínum öðrum leik í röð í kvöld, er hins vegar í 12. sæti með 14 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×