Glamour

Donatella Versace mætt með stæl á Instagram

Ritstjórn skrifar
Donatella Versace ásamt fyrirsætunni og samfélagsmiðladrottningunni Gigi Hadid.
Donatella Versace ásamt fyrirsætunni og samfélagsmiðladrottningunni Gigi Hadid. Skjáskot/Instagram
Tískudrottningin Donatella Versace byrjaði á samfélagsmiðlinum Instagram fyrir fjórum dögum síðan og er heldur betur búin að vera virk. Ekki seinna vænna fyrir aðdáendur hennar en tískudrottningin er nú búin að deila 10 myndum á fjórum dögum og safna yfir 125 þúsund fylgjendum. 

Ástæðan eru tökur á auglýsingaherferð Versace fyrir vor/sumar 2016 þar sem fyrirsætan Gigi Hadid leikur aðalhlutverk. Það var því vel við hæfi að fyrsta mynd Donatellu á Instagram var sjálfsmynd með Hadid.

Ljósmyndarinn á bakvið herferðina var sjálfur Steven Klein en myndirnar hafa nú þegar lekið á netið - hér má sjá smá brot af sumarherferð Versace - ekki seinna vænna: 





I love my dream team! #TEAMDV

A photo posted by Donatella Versace (@donatella_versace) on

My men in front and behind the camera. #TeamDV @stevenkleinstudio #shotbyklein

A photo posted by Donatella Versace (@donatella_versace) on

Hey guys, here I am! x #TeamDV @gigihadid

A photo posted by Donatella Versace (@donatella_versace) on



×