Viðskipti innlent

Íslensku bankarnir allir bestir: „Þetta ástand er algjörlega óviðunandi“

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Arion banka, veitir viðurkenningunni móttöku.
Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Arion banka, veitir viðurkenningunni móttöku. Mynd af vefsíðu Arionbanka
Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn geta allir státað af verðlaunum sem besti bankinn á Íslandi. Hver og einn getur vísað til verðlauna sem bankinn vann erlendis í kosningu um besta íslenska bankann. Þetta kemur fram í samantekt Kjarnans.

Tímaritið The Banker útnefndi Arion banka þann besta, tímaritið Euromoney verðlaunaði Íslandsbanka þriðja árið í röð og og Landsbankinn var sá besti, bæði í fyrra og hitt í fyrra, að mati Global Finance Magazine.

Rétt er að taka fram að íslensku bankarnir sóttu sjálfir um að taka þátt til að eiga möguleika á að hljóta útnefningu en eðli málsins samkvæmt koma ekki margir bankar til greina. Aðeins þeir sem sækjast að fyrra bragði eftir verðlaununum.

Elín Hirst segir greinilega alla vera sigurvegara nema viðskiptavini bankanna, þ.e. íslenskan almenning.Vísir/Daníel
„Þetta er mjög áhugavert, sér í lagi að sjá það hvaða mat liggur að mati umræddum verðlaunum,“ sagði Elín Hirst, þingkona Sjálfstæðisflokksins á Alþingi í dag.

„Bankar á Íslandi starfa á fákeppnismarkaði þar sem allir bjóða það sama og enginn hvati er hjá viðskiptavinum til að skipta um banka. Þetta ástand er algjörlega óviðunandi og óásættanlegt,“ sagði Elín og vísað til nýlegrar könnunar um traust landsmanna til íslensku bankanna.

Niðurstöðurnar voru þær að rúmlega 70 prósent treysta íslenskum bönkunum frekar lítið eða mjög lítið.

„Allir eru sigurvegarar nema viðskiptavinirnir en það er kannski bara aukaatriði.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×