Fóru vegna stefnu í útlendingamálum kristjana guðbrandsdóttir skrifar 16. desember 2015 07:00 Arndís A.K Gunnarsdóttir lögfræðingur segir mestu máli skipta að stefna í útlendingamálum breytist. Túlkun laganna sé of þröng. Fréttablaðið/GVA
Lögfræðingur Pepaj-fjölskyldunnar, Arndís Anna Gunnarsdóttir, segir að það sé þröng túlkun ákvæðisins og stefna í útlendingamálum sem skipti máli þegar kemur að úrbótum í málaflokknum. Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir því að Útlendingastofnun gefi upplýsingar um málsmeðferð og rannsókn umsókna um svokölluð mannúðarleyfi af heilbrigðisástæðum og sérstaklega er óskað eftir upplýsingum um þessi atriði þegar umsækjandi er barn. Hermann Ragnarsson hefur aðstoðað Pepaj fjölskylduna eftir fremsta megni. Hann segir engan misskilning hafa komið upp í túlkun á úrskurði Útlendingastofnunar. Fjölskyldan hafi farið vegna stefnu Íslands í Útlendingamálum. Fréttablaðið/Rósa „Það sem má betur fara varðandi framkvæmdina á þessari lagagrein er að mínu mati fyrst og fremst túlkunin og stefnan. Hana má rýmka. Gríðarlega þröng túlkun ákvæðisins og annarra ákvæða er varða hælisleitendur og flóttamenn er helsta vandamálið, fremur en málsmeðferðin sjálf. Ef lagatúlkunin er svona þröng, þá skiptir litlu máli þó mál sé betur rannsakað. Það er auðvitað sjálfsagt mál að gera athugasemdir þegar rannsókn er ábótavant, en það er hins vegar ekki gefið að ítarlegri rannsókn leiði til annarrar niðurstöðu. Það er stefnan sem er vandamálið.“ Pepaj-fjölskyldan ákvað að fara vegna þess að Albanar hafa ekki fengið dvalarleyfi hér á landi hingað til. Það var fyrst og fremst vegna þessa sem hún ákvað að draga kæru sína til baka. Þetta segir Hermann Ragnarsson sem hefur aðstoðað fjölskylduna en í kvöldfréttum RÚV nýverið kom fram að annar hælisleitandi túlkaði fyrir fjölskylduna. Hermann segir engan misskilning hafa orðið í þessum aðstæðum, fjölskyldan hafi verið ánægð með þjónustu Rauða krossins. Arndís segir mismunandi viðmið gilda í mismunandi aðstæðum. „Það er ljóst að hælisleitandi þarf að tjá sig og skilja aðra við margar og mismunandi aðstæður, bæði formlegar og óformlegar, í samtali og í síma eða skilaboðum. Mismunandi viðmið eru varðandi túlka við mismunandi aðstæður.“ Samstöðufundur var haldinn á Austurvelli vegna áætlaðrar komu tveggja albanskra fjölskyldna með veik börn aftur til landsins enda ljóst að þær þurfa frekari stuðning við komuna. Umboðsmaður Alþingis hefur beðið um upplýsingar frá Útlendingastofnun vegna málsmeðferðarinnar. Fréttablaðið/Ernir Í hælisviðtali hjá Útlendingastofnun og við birtingu ákvörðunar eða úrskurðar segir Arndís að alltaf sé boðaður túlkur sem talar íslensku. „Hér hjá okkur, fyrir ráðgjafarsamtöl, sem jafnan eru óformleg, notumst við oftast við símatúlkun frá fyrirtæki frá Bretlandi, sem heitir Language Line. Ef fólk mætir til okkar með vin með sér sem það vill að túlki, þá setjum við okkur almennt ekki upp á móti því ef það er ekkert sem bendir til annars en að það sé í lagi.“ Börn séu þó aldrei látin túlka og ef minnsti vafi leiki á að túlkunin verði hlutlaus, eða Rauði krossinn hafi minnsta grun um að ósk viðkomandi um að vinurinn túlki sé ekki einlæg, þá sé notast við Language Line. „Ég hef enga ástæðu til að ætla annað en að túlkun Phellumb hafi verið hlutlaus og áreiðanleg, enda var hann í sambærilegri stöðu og Kastriot og Xhulia, og ég veit ekki betur en að þau séu öll góðir vinir og að traust ríki á milli þeirra.“
Flóttamenn Reiði vegna brottvísunar albanskra fjölskyldna Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira