Körfubolti

Viðar svaf yfir sig og Höttur missti af fluginu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Staðarblaðið Austurfrétt greindi frá því í gær að körfuboltalið Hattar missti af flugi sínu til Egilsstaða frá Reykjavík á laugardagsmorgun.

Höttur tapaði fyrir Þór Þorlákshöfn á föstudagskvöldið og gisti í Reykjavík um nóttina. Hópurinn átti svo bókað fyrsta flug morguninn eftir til Egilsstaða.

Ekki vildi betur til en svo að rafhlaða síma þjálfarans Viðars Arnar Hafsteinssonar tæmdist um nóttina og um leið vekjaraklukka hans.

Þeir leikmenn sem vöknuðu á réttum tíma voru ekki vissir um brottfarartíma liðsins og missti því það af fluginu.

Ummæli Viðars eftir leikinn á föstudag vöktu mikla athygli en viðtalið má lesa í heild sinni hér.

Sjá einnig: Körfuboltakvöld: Viðtal ársins | Myndband




Fleiri fréttir

Sjá meira


×