Handbolti

Enn einn sigurinn hjá PSG

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Mikkel Hansen skoraði átta mörk í dag.
Mikkel Hansen skoraði átta mörk í dag. vísir/getty
Sigurganga Paris Saint-Germain í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta heldur áfram en í dag vann liðið átta marka sigur, 33-25, á botnliði Chartres á heimavelli.

PSG hefur unnið 12 af 13 leikjum sínum og er með sex stiga forskot á toppi deildarinnar.

Mikkel Hansen var markahæstur í liði PSG í dag en danska stórskyttan skoraði átta mörk. Igor Vori kom næstur með sjö mörk og þá gerði Benoit Kounkoud fimm mörk.

Róbert Gunnarsson var ekki á meðal markaskorara hjá PSG en hann hefur fá tækifæri fengið með liðinu í vetur og er líklega á förum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×