Handbolti

Fannar markahæstur í tapi Eintracht Hagen

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Fannar er næstmarkahæsti leikmaður Hagen á tímabilinu.
Fannar er næstmarkahæsti leikmaður Hagen á tímabilinu. vísir/getty
Fannar Þór Friðgeirsson var markahæstur í liði Eintracht Hagen sem tapaði með fjögurra marka mun, 23-27, fyrir Ludwigshafen-Friesenheim í þýsku B-deildinni í handbolta í dag.

Þetta var fjórða tap Hagen í síðustu fimm leikjum en liðið er í 15. sæti deildarinnar með 15 stig, tveimur stigum frá fallsæti.

Fannar skoraði fimm mörk úr sjö skotum og átti auk þess tvær stoðsendingar í leiknum.

Fannar er á sínu fyrsta tímabili með Hagen en hann er næstmarkahæsti leikmaður liðsins í vetur með 71 mark í 19 deildarleikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×