Handbolti

Átta mörk Árna dugðu ekki til

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Árni skoraði átta mörk en það dugði ekki til.
Árni skoraði átta mörk en það dugði ekki til. vísir/arnþór
Íslendingaliðið Aue beið lægri hlut fyrir Erlangen, 25-29, í þýsku B-deildinni í handbolta í dag.

Árni Þór Sigtryggsson var markahæstur í liði Aue með átta mörk en frændi hans, Sigtryggur Daði Rúnarsson, skoraði eitt. Sveinbjörn Pétursson ver mark liðsins en Bjarki Már Gunnarsson er enn frá vegna meiðsla.

Rúnar Sigtryggsson, bróðir Árna og faðir Sigtryggs, þjálfar Aue og hefur gert frá 2012.

Aue er með 24 stig í 4. sæti deildarinnar en þrjú efstu lið deildarinnar komast upp í efstu deild.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×