Körfubolti

Curry fór illa með litla bróður

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Bræður munu berjast. Seth Curry reynir að stöðva Steph Curry.
Bræður munu berjast. Seth Curry reynir að stöðva Steph Curry. vísir/getty
Fjöldi leikja fór fram í NBA-deildinni í nótt og þar bar hæst að Golden State vann enn eina ferðina.

Að þessu sinni valtaði Golden State yfir Sacramento. Meistararnir eru þar með búnir að vinna 29 leiki og aðeins tapa einum.

Stephen Curry lenti í því að litli bróðir hans, Seth, var að verjast honum í fyrsta skipti í deildinni. Það tók Steph aðeins úr jafnvægi er hann klikkaði á fyrsta þriggja stiga skotinu en síðan náði hann áttum og fór á kostum.

Curry var með þrefalda tvennu í leiknum. Hann skoraði 23 stig, tók 14 fráköst (sem er hans besta á ferlinum, og gaf 10 stoðsendingar. Þetta er í sjötta sinn á ferlinum sem Curry nær þrefaldri tvennu.

Þetta var 33. heimasigur Warriors í röð.

Úrslit:

Charlotte-LA Lakers  108-98

Indiana-Atlanta  93-87

Orlando-New Orleans  104-89

Washington-LA Clippers  91-108

Miami-Brooklyn  105-111

Chicago-Toronto  104-97

Dallas-Milwaukee  103-93

San Antonio-Minnesota  101-95

Phoenix-Cleveland  97-101

Utah-Philadelphia  95-91

Golden State-Sacramento  122-103

Staðan í NBA-deildinni.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×