Handbolti

Gunnar Steinn skoraði tvö mörk í tapleik

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gunnar Steinsson Jónsson.
Gunnar Steinsson Jónsson. vísir/getty
Gunnar Steinn Jónsson og félagar hans í Gummersbach þurftu að sætta sig við þriggja marka tap, 28-25, gegn Flensburg á útivelli í þýsku 1. deildinni í handbolta í kvöld.

Gummersbach stóð vel í sterku og vel mönnuðu liði Flensburg í kvöld. Staðan var 13-11 í hálfleik en gestirnir náðu að komast yfir, 16-17, snemma í seinni hálfleik.

Aðeins munaði einu marki á liðunum, 25-24, þegar þrjár og hálf mínúta var eftir en heimamenn voru sterkari á enda sprettinum og innbyrtu sigurinn.

Gunnar Steinn skoraði tvö mörk í fimm skotum í kvöld en þetta var þriðja tap Gummersbach í röð. Það er búið að tapa síðustu þremur leikjum fyrir Rhein-Neckar Löwen, Melsungen og Flensburg sem eru öll í efri hluta deildarinnar.

Gummersbach er í ellefta sæti deildarinnar með 18 stig en Flensburg er í þriðja sæti með 31 stig, stigi á eftir Kiel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×