„Allt frá því að framkvæmdastjórinn fékk stöðu grunaðs manns hefur stjórn félagsins borið fullt traust til hans og á því hefur ekki orðið breyting. Það er ákvörðun stjórnar að leyfa framkvæmdastjóra að njóta áfram vafans,“ segir í tilkynningu stjórnar AFE.
Þorvaldur Lúðvík fékk átján mánaða dóm í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, fékk þyngsta dóminn, eða alls fimm ára dóm. Jóhannes Baldursson, framkvæmdastjóri markaðsviðskipta bankans á þeim tíma, fékk tvö og hálft ár.
Í málinu var Lárus ákærður ásamt þeim Jóhannesi og Þorvaldi Lúðvík fyrir lánveitingar Glitnis til hlutabréfakaupa í Glitni og FL Group. Mennirnir neituðu allir sök. Forsaga málsins er sú að félagið Stím fékk tæplega 20 milljarða króna að láni frá Glitni til að kaupa hlutabréf í Glitni og FL Group í nóvember árið 2007. Seljandi bréfanna var Glitnir en um var að ræða rúmlega 4 prósenta hlut í hvoru tilfelli. Veðin fyrir láni Stíms voru í hlutabréfunum í Glitni og FL Group.
Fór saksóknari Hólmsteinn Gauti Sigurðsson fram á fangelsisdóma yfir öllum ákærðu, nánar tiltekið 5 ára dóm yfir Lárusi, 3 ára dóm yfir Jóhannesi og 18 mánaða dóm yfir Þorvaldi. Þorvaldur var viðstaddur dómsuppkvaðningu en Lárus og Jóhannes ekki.

Hann taldi að Glitnir væri í góðum málum rekstarlega séð enda höfðu fyrstu sex mánuðir ársins 2008 fært félaginu 40 milljarða. Að auki hafði bankinn allar upplýsingar um stöðu Stím á þessum tíma en fram kom við skýrslutökuna að sjálfum hafði Þorvaldi gengið illa að fá upplýsingar um skuldastöðu félagsins fyrri hluta árs 2008.
Þegar Þorvaldur Lúðvík var ákærður af sérstökum saksóknara steig hann til hliðar tímabundið sem framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar. Var hann leystur undan starfsskyldum formanns samkvæmt tilkynningu frá AFE á þeim tíma. Formaður stjórnar tók þá við stjórnartaumum í atvinnuþróunarfélaginu um hríð.
Yfirlýsing AFE í heild sinni
Akureyri, 21. desember 2015
Yfirlýsing vegna dóms Héraðsdóms Reykjavíkur í máli framkvæmdastjóra Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar bs., Þorvaldar Lúðvíks Sigurjónssonar
Í ljósi niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur vill stjórn Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar bs. (AFE) koma eftirfarandi á framfæri:
Eftir að hafa farið gaumgæfilega yfir málið og leitað sér lögfræðiráðgjafar hefur stjórn AFE komist að þeirri niðurstöðu að aðhafast ekki í máli framkvæmdastjóra félagsins fyrr en að niðurstaða Hæstaréttar Íslands liggur fyrir.
Allt frá því að framkvæmdastjórinn fékk stöðu grunaðs manns hefur stjórn félagsins borið fullt traust til hans og á því hefur ekki orðið breyting. Það er ákvörðun stjórnar að leyfa framkvæmdastjóra að njóta áfram vafans. Í ljósi þess hvernig á málum hefur verið haldið hingað til og þess að málið er enn í meðförum dóms telur stjórn eðlilegt að endanleg ákvörðun verði ekki tekin fyrr en að úrskurður Hæstaréttar liggur fyrir, enda hefur Hæstiréttur síðasta orðið um sekt manna og sakleysi að lögum.
F. h. stjórnar Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar bs.
Unnar Jónsson, formaður