Körfubolti

Curry missir líklega af tveimur leikjum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Stephen Curry.
Stephen Curry. vísir/getty
Besti leikmaður NBA-deildarinnar, Stephen Curry, leikmaður Golden State Warriors, meiddist í leik Warriors og Sacramento á mánudag.

Hann gæti misst af næstu tveim leikjum liðsins að því er Luke Walton, bráðabrigðaþjálfari liðsins, segir.

Hann verður ekki með í nótt er Warriors mætir Dallas Mavericks og svo verður að koma í ljós hvernig staðan er á honum.

Warriors er búið að vinna 29 af fyrstu 30 leikjum sínum í deildinni og Curry farið algjörlega á kostum.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×