Strengjakvartettinn Siggi Jónas Sen skrifar 7. janúar 2015 16:00 Una Sveinbjarnardóttir, Helga Þóra Björgvinsdóttir, Þórunn Ósk Marinósdóttir og Sigurður Bjarki Gunnarsson.
Tónlist Strengjakvartettinn Siggi Tónleikaröðin Hljóðön í Hafnarborg sunnudaginn 4. janúar. Ég veit ekki af hverju Strengjakvartettinn Siggi heitir svona flippuðu nafni. Kannski vegna þess að einn liðsmaður kvartettsins ber nafnið Sigurður. Kvartettinn hélt tónleika í Hafnarborg á sunnudaginn. Tónleikarnir voru hluti af röð sem er líka kölluð skrítnu nafni: Hljóðön. Það er hugtak úr hljóðfræði tungumála. Hljóðön, á ensku phonem, eru smæstu hljóðeiningarnar sem við getum gert með munninum. Með því að raða þessum einingum saman á mismunandi hátt myndum við orð og setningar. Tónleikaröðin er helguð samtímatónlist, sem rétt eins og orð er byggð úr örsmáum hljóðum. Þar með er undirstrikuð sú staðreynd að tónlist er tungumál, sem nær þó inn á önnur svið en venjulega. Victor Hugo sagði að tónlist væri um eitthvað sem ekki er mögulegt að koma orðum að, en er ekki heldur hægt að þegja yfir. Það á auðvitað við um alla tónlist, bæði úr samtímanum og þá sem eldri er. Siggi samanstendur af fiðluleikurunum Unu Sveinbjarnardóttur og Helgu Þóru Björgvinsdóttur, Þórunni Ósk Marinósdóttur víóluleikara og Sigurði Bjarka Gunnarssyni á selló. Leikur kvartettsins á tónleikunum var samstilltur og kraftmikill, sama hvað gekk á. Það fyrsta á dagskránni, kvartett nr. 2 eftir Naomi Kinnock, var magnað. Einfaldir, ísmeygilegir tónar í upphafi fóru í gegnum alls konar úrvinnslu. Þeir voru teygðir og togaðir, saxaðir niður, en héldu þó alltaf stemningunni í byrjun. Sú stemning var myrk, nánast martraðarkennd. Túlkunin á fallega áleitnum og alvörugefnum kvartett nr. 5 eftir Giacinto Scelsi var líka sannfærandi, bæði þétt og fókuseruð. Æskuverki eftir Atla Heimi Sveinsson, kvartett nr. 2 frá árinu 1960 í endurskoðaðri mynd frá 2005 var jafnframt gerð góð skil. En áhugaverðastur var kvartett Unu Sveinbjarnardóttur sem fyrr var nefnd. Kvartettinn, sem bar nafnið Þykkt, var í fjórum köflum. Hver kafli skartaði mun lengri sólókafla en gengur og gerist í sambærilegri tónsmíð. Sólókaflarnir voru leiknir af mismunandi hljóðfæraleikurum. Undir sólóunum mynduðu hin hljóðfærin þykkan hljóðavef til mótvægis. Það var eitthvað ferskt og sakleysislegt við stefin, blátt áfram og óheft. Undirspilið var hins vegar skemmtilega dulúðugt. Þessar andstæður minntu eilítið á síhvikula náttúrustemninguna í verkum tékkneska tónskáldsins Leos Janacek. Una hefur hingað til ekki verið sérlega áberandi sem tónskáld. En hún er greinilega bráðefnileg og ég hlakka til að heyra meira eftir hana.Niðurstaða: Glæsilegur flutningur, yfirleitt skemmtilegar tónsmíðar.
Gagnrýni Menning Mest lesið Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Lífið Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðardrottninguna Lífið Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Tíska og hönnun Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Lífið Frumsýning á Vísi: „Sýna fólki hver Bubbi er í raun og veru“ Bíó og sjónvarp Sigurður Sævar fyllti Landsbankahúsið Menning Innlit í glænýja mathöll í Smáralindinni Lífið Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Lífið Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Lífið Stiklusúpa: Allt það helsta sem kynnt var á Game awards Leikjavísir Fleiri fréttir Aðeins of leiðinlegt til að vera skemmtilegt Vonlaust í víkinni Hörkuhasar þótt persónusköpun skorti Bragðlaust eins og skyr með sykri Sambandslaus Hamlet Sjá meira