Innlent

Ekkert eftirlit með misbeitingu au pair-fólks hér á landi

fanney birna jónsdóttir skrifar
Jóhanna María Sigmundsdóttir, þingmaður.
Jóhanna María Sigmundsdóttir, þingmaður. Vísir/Getty
Jóhanna Margrét Sigmundsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, spurði Ólöfu Nordal innanríkisráðherra út í eftirlit með vistráðningum, eða ráðningum au pair eins og það er gjarnan kallað þar sem ungt fólk ræður sig til starfa við ýmis verkefni eða hjá fjölskyldum erlendis og dvelur þá hjá þeim, á Alþingi á mánudag.

Jóhanna sagði í nágrannalöndum okkar hafa komið upp mál er vörðuðu alvarleg brot á slíkum aðilum. „Þar er meðal annars verið að tala um misbeitingu þess valds sem ráðandi telur sig hafa yfir umsækjendum, misnotkun starfskrafta og þá þrælkun, misnotkun andlega og kynferðislega, jafnvel mansal og vændi. Þetta er helst í þeim tilfellum er ungar konur koma frá vanþróaðri og/eða fátækari löndum til Norðurlandanna.“

Jóhanna vildi vita hvernig eftirliti væri háttað með slíkum ráðningum og hvort fagaðilar héldu utan um þetta unga fólk. Þá spurði hún hvort ráðherra teldi núverandi kerfi og eftirlit koma í veg fyrir þrælkun, misnotkun á vinnutíma, andlega og/eða kynferðislega misnotkun á þessum einstaklingum.

Ólöf sagði ekki gert ráð fyrir sérstöku eftirliti af hálfu Útlendingastofnunar með þeim sem hingað koma til lands til vistráðningar. „Útlendingastofnun hefur þó í einstaka tilvikum vísað málum til lögreglu ef upp hefur komið grunur um annaðhvort misnotkun á au pair-leyfinu eða misnotkun á viðkomandi aðila sjálfum.“

Ólöf sagði það mat þeirra sem vinna að þessum málaflokki að núverandi reglur kæmu ekki nægilega vel í veg fyrir þrælkun, misnotkun og mansal. Hún lagði áherslu á að vinna við að endurskoða útlendingalögin stæði yfir, þar á meðal dvalarleyfi á grundvelli vistráðningar.

„Tilgangurinn er að bæta þetta umhverfi og gera það öruggara fyrir þá sem nýta þessi leyfi og skilvirkara á allan hátt,“ sagði Ólöf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×