Innlent

Mætti í ráðuneytið og áminnti ráðherra

Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar
Síðustu vikur hefur Guðrún Einarsdóttir, 82 ára ellilífeyrisþegi, barist fyrir bættum réttindum eldri borgara landsins. Hún mótmælti því að lífeyrisþegar missi lífeyri þegar þeir dvelja langdvölum á sjúkrastofnun eða dvalarheimili og hélt blaðamannafund á heimili sínu þegar það var hlutskipti hennar sjálfrar.

Guðrún heldur baráttu sinni áfram og vill að greiðsluþátttöku aldraða verði breytt þannig að aldraðir haldi fjárhagslegu sjálfstæði og greiðslur vasapeninga lagðar af. Þá vill hún að stofnað verði embætti umboðsmanns aldraðra sem gæti hagsmuna þeirra.

„Nú er ég mætt hingað í ráðuneytið með vinalega áminningu til ráðherra, ég fæ reyndar ekki að hitta hana heldur Matthías, aðstoðarmann hennar,“ segir Guðrún þar sem hún bíður á biðstofu í ráðuneytinu. Með henni í för er Sigrún Huld Þorgrímsdóttir öldrunarhjúkrunarfræðingur, sem hefur ákveðið að veita Guðrúnu liðsinni í baráttunni. „Í gegnum Guðrúnu hef ég kynnst því hvernig stjórnvaldið vinnur og sé þörf á breytingum. Það gengur ekki að hafa málefni aldraða í tveimur ráðuneytum á herðum tveggja ráðherra.“

Guðrún lætur ekki deigan síga. Vísir/Valli
Þingsályktunartillaga liggur fyrir Alþingi um stofnun embættis umboðsmanns aldraðra og Guðrúnu er umhugað um að tillagan verði tekin alvarlega en hugmyndin er ekki ný af nálinni. Á Alþingi veturinn 1996-1997 flutti Guðmundur Hallvarðsson tillögu um stofnun þessa embættis. Árið 2007 samþykkti Félag eldri borgara ályktun um að eldri borgarar fengju umboðsmann. 

„Bág staða aldraðra er auðmýkjandi og hana þarf að leiðrétta og hananú, ég vitna í orð Páls Matthíassonar, forstjóra Landspítala. Það vantar fimm hundruð rými á næstu fimm árum. Við verðum að berjast, því við verðum öll gömul, er það ekki?“ segir Guðrún sem hefur fylgst vel með fréttum af stöðu aldraðra sem geta ekki útskrifast af spítölum vegna úrræðaleysis.

Matthías Imsland opnar hurð til hálfs. „Guðrún,“ kallar hann hvellt og boðar hana til sín. Hún fær aðstoð Sigrúnar Huldar við að komast inn ganginn og í fundarherbergið. Hún hefur ekki enn fengið sérstaka ökklaskó sem hún sótti um að fá fyrir meira en mánuði og þarf því ríkan stuðning.

Á fundinum lagði Guðrún svo fram kröfu sína og áminningu. „Ég bað um að þetta yrði leiðrétt 1. júlí og leiðrétt aftur í tímann það sem hefur verið tekið af.“


Tengdar fréttir

„Stjórnmálamenn gera ekki neitt“

Guðrún Einarsdóttir segir stjórnmálamenn lofa öllu fögru þegar bæta á kjör eldri borgara en standa síðan ekki við neitt.

Sett nauðug á vasapeninga

Guðrún Einarsdóttir er 82 ára öryrki. Hún er á bið eftir hjúkrunarheimili og mun þurfa að lifa af rúmlega 50 þúsund krónum á mánuði. Sú fjárhæð dugar ekki fyrir brýnum nauðsynjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×