Innlent

Engar viðræður í gangi um þinglok

Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar
Oddvitar ríkisstjórnarinnar hafa ekki borið sig eftir samningum um þinglok.
Oddvitar ríkisstjórnarinnar hafa ekki borið sig eftir samningum um þinglok. vísir/valli
Stjórnarmeirihlutinn hefur ekkert rætt við stjórnarandstöðuna um hvernig starfi þingsins verður háttað, en samkvæmt starfsásætlun á að fresta þingi á föstudag í næstu viku, 29. maí. Heimildarmenn Fréttablaðsins lýsa stemningunni á Alþingi sem skrítinni. Enginn viti í raun hvernig starfinu verður háttað, hvenær þinginu verði frestað eða hvað verði á dagskrá.

Það vekur athygli að stjórnarmeirihlutanum virðist ekki liggja á að semja um þinglok. Margir þingmenn sem Fréttablaðið ræddi við, bæði úr stjórn og stjórnarandstöðu, hafa bent á að ekki séu mörg stór mál sem bíði afgreiðslu. Það þurfi því ekki að vera slæm staða fyrir stjórnina að þingið sé upptekið við að ræða rammann.

Stór frumvörp sem beðið hefur verið eftir hafa ekki enn litið dagsins ljós. Þar má nefna síðari húsnæðisfrumvörp Eyglóar Harðardóttur, en ekki síst frumvarp um stöðugleikaskatt sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hefur boðað að verði lagt fram fyrir þinglok.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsmálaráðherra, sagði í samtali við Fréttablaðið 21. apríl að það yrði handleggur að ljúka þingstörfum fyrir sumarið, en var þó bjartsýnn.

„Já, við höfum svo oft staðið frammi fyrir því að það séu allt að 100 mál óafgreidd þegar það er jafnvel vika, tíu dagar eftir af þingstörfum. Já, já, ég held að við munum ljúka öllum okkar mikilvægustu málum.“

Ákveðið hefur verið að Alþingi komi saman 19. júní til að minnast þess að 100 ár eru liðin frá því að konur fengu kosningarétt. Einn möguleiki sem heimildarmenn blaðsins hafa nefnt er að þingi verði ekki frestað fyrir þann fund.

Fundað til 19. júní?

Ákveðið hefur verið að Alþingi komi saman 19. júní til að minnast þess að 100 ár eru liðin frá því að konur fengu kosningarétt. Einn möguleiki sem heimildarmenn blaðsins hafa nefnt er að þingi verði ekki frestað fyrir þann fund. Vilji stjórnin halda þingi áfram dugar einfaldur meirihluti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×